Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2017 Utanríkisráðuneytið

Þungar áhyggjur af afleiðingum tilskipunar Bandaríkjaforseta

Íslensk stjórnvöld harma tilskipun Bandaríkjaforseta um bann við landgöngu flóttafólks og borgara sjö ríkja til Bandaríkjanna og lýsa þungum áhyggjum af því hvaða afleiðingar hún kunni að hafa. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að þessi tilskipun sé mjög fjarri því sem við höfum átt að venjast frá Bandaríkjunum, og það sé áhyggjuefni. "Ég tel það fjarri lagi að bann við komu flóttafólks og íbúa ákveðinna ríkja sé besta leiðin til að tryggja öryggi Bandaríkjanna, sem er yfirlýst markmið tilskipunarinnar," segir utanríkisráðherra. Segir hann öryggissjónarmið skipta þegar miklu máli á sama tíma og hryðjuverkaógnin á Vesturlöndum fari vaxandi. "En að loka landamærum fyrir fólki sem er á flótta undan stríði, og gera upp á milli fólks á grundvelli þjóðernis eða trúar, getur ekki verið rétta leiðin og gefur röng skilaboð," segir Guðlaugur Þór. "Í innflytjendum og flóttafólki felst framar öðru mannauður og fjölbreytt reynsla sem er til þess fallin að auðga samfélög,"

Guðlaugur Þór segir jafnframt að íslenskir ríkisborgarar, sem upprunir eru frá einhverjum þessara landa sem falli undir tilskipun Bandaríkjaforseta, muni hljóta fullan stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar komi til þess að þeim verði meinuð innganga í Bandaríkin á grundvelli uppruna síns. Þá muni íslensk stjórnvöld koma athugasemdum og afstöðu á framfæri við bandarísk stjórnvöld með skýrum hætti. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum