Hoppa yfir valmynd
16. mars 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 15/2016 Úrskurður 4. mars 2016

Mál nr. 15/2016                     Millinafn:       Kling

 


Hinn 4. mars 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 15/2015 en erindið barst nefndinni 3. mars:

Sótt er um millinafnið Kling.

Öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru neðangreind:

·          Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.

·          Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karl eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.

·          Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

·          Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Kling hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Millinafnið Kling uppfyllir þannig ákvæði 6. og 7. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Kling er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum