Hoppa yfir valmynd
21. september 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 308/2022 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 308/2022

Miðvikudaginn 21. september 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. júní 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 105.703 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. júní 2022. Með bréfi, dags. 16. júní 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 1. júlí 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. júlí 2022. Athugasemdir bárust frá kæranda 26. júlí 2022 og voru þær sendar Tryggingastofnun ríkisins þann 28. júlí 2022. Með bréfi, dags. 16. ágúst 2022, barst viðbótargreinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins. Þann 6. september 2022 lagði kærandi fram læknisvottorð og var það sent Tryggingastofnun ríkisins til kynningar. Efnislegar athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Enginn rökstuðningur kemur fram í kæru en henni fylgdi endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2021.

Í athugasemdum kæranda frá 26. júlí 2022 er greint frá því að í greinargerð Tryggingastofnunar komi fram að hægt sé að sækja um niðurfellingu skuldar ef um sérstakar aðstæður sé að ræða. Kærandi sé með fjóra undirliggjandi sjúkdóma, nánar tiltekið hvítblæði, blöðruhálskirtils- og eitlakrabbamein, auk astma sem hafi töluverðan kostnað í för með sér. Þetta ætti að duga, kærandi sé X ára og ekki megi gleyma því að ríkið hafi tvískattað hann á árunum 1971 til 1988 í lífeyrissjóð. Kærandi fái mánaðarlega launauppbót frá fyrirtækinu B en ekki frá öðrum aðilum. Athygli sé vakin á því að hann hafi aldrei fengið frítekjumark.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með ellilífeyri allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 105.703 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar í skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Maki kæranda hafi skilað inn tekjuáætlun þann 19. ágúst 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir 33.000 kr. í sameiginlegar tekjur þeirra hjóna í vexti og verðbætur. Tryggingastofnun hafi reiknað bætur kæranda frá áramótum fram í ágúst 2021 út frá tekjuáætlun sem hafi hljóðað upp á 2.918.324 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 265.294 kr. í sameiginlegar tekjur þeirra hjóna í vexti af innistæðum.

Tryggingastofnun hafi samþykkt nýja áætlun með bréfi, dags. 29. september 2021, þar sem fram komi að Tryggingastofnun hefði móttekið nýja tekjuáætlun frá maka kæranda þar sem fjármagnstekjum hafi verið breytt. Á grundvelli hennar hafi bótaréttur ársins verið endurreiknaður og fyrir legið inneign að fjárhæð 2.702 kr.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með 3.258.681 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hafi verið 8.437 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 2.054.342 kr. en hefði átt að fá greitt 1.900.145 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 105.703 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í viðbótargreinargerð Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 16. ágúst 2022, kemur fram að stofnunin hafi farið yfir viðbótargögn kæranda og sjái ekki ástæðu til sérstakra athugasemda.

Vakin sé athygli á því að kærandi hafi sótt um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu sem verði tekin til afgreiðslu eins fljótt og hægt sé. Þegar ákvörðun hafi verið tekin í því máli muni hún verða kæranleg til nefndarinnar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2021. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt.

Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. þeirra laga ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar, ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins gerði Tryggingastofnun ráð fyrir að kærandi fengi á árinu 2021 2.918.324 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 265.294 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út miðað við hana. Maki kæranda lagði fram tekjuáætlun 19. ágúst 2021 þar sem gert var ráð fyrir 33.000 kr. í fjármagnstekjur á árinu, sameiginlegar með maka. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 29. september 2021, var kærandi upplýstur um að framangreind tekjuáætlun maka hefði verið samþykkt. Í bréfinu var kærandi upplýstur um inneign að fjárhæð 2.702 kr. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út miðað við þær forsendur út árið 2021.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust tekjur kæranda á árinu vera 3.258.681 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 8.437 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins var sú að kærandi hafi fengið ofgreiddan ellilífeyri og orlofs- og desemberuppbætur og að ofgreiðsla ársins hafi verið samtals að fjárhæð 105.703 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust lífeyrissjóðstekjur kæranda vera hærri á árinu 2021 en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun og leiddu til kærðrar ofgreiðslukröfu. Eins og áður hefur komið fram eru lífeyrissjóðstekjur tekjustofn sem hefur áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum