Hoppa yfir valmynd
3. október 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Nefnd um samstarf á heilbrigðissviði

Fjórir fulltrúar heilbrigðisyfirvalda á Íslandi og í Færeyjum eiga að gera tillögur um sameiginlegan heilbrigðisþjónustumarkað þjóðanna. Heilbrigðisráðherrarnir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Hans Pauli Strøm, hafa skipað nefnd sem hefur það hlutverk að semja tillögur um samstarf Íslendinga og Færeyinga í lyfja- og heilbrigðismálum. Markmiðið er að koma á fót sameiginlegum markaði fyrir lyf og aðra heilbrigðisþjónustu. Nefndinni er falið að draga fram þau heilbrigðissvið sem falla vel að samstarfinu og þá þætti, sem stuðla að viðskiptum með lyf, hjúkrunar- og lækningavörur í anda fríverslunarsamnings milli Íslands og Færeyja, sem tók gildi 1. nóvember 2006 (Hoyvíkur samningurinn).

Í nefndina eru:

Einar Magnússon, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,

Heri Mørkøre, landsapotekari,

Tummas í Garði, læknastjóri á Landssjúkrahúsinum,

Vilhelmína Haraldsdóttir sviðstjóri á Landspítala.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum