Hoppa yfir valmynd
21. júní 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 294/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. júní 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 294/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18060020

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Þann 9. janúar 2018 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. september 2017, um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefndur kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Ítalíu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 15. janúar 2018. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 22. janúar 2018. Beiðni kæranda var synjað af kærunefnd þann 4. apríl 2018. Þann 12. júní sl. barst kærunefnd endurupptökubeiðni kæranda. Þann 14. júní bárust kærunefnd jafnframt upplýsingar frá Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku er byggt á því að meira en 12 mánuðir hafi nú liðið frá því að umsókn hans um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og að tafir á afgreiðslu umsóknarinnar séu ekki á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Í ljósi þess að kærandi hafi lagt fram umsókn sína á Íslandi þann 10. júní 2017 og dvalið samfellt hér á landi síðan sé tilefni til þess að skoða mál hans aftur í ljósi breyttra aðstæðna sem uppi séu í málinu. Í því sambandi vísar kærandi jafnframt til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 188/2017 frá 6. apríl 2017.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir m.a. að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreindra lagaákvæða og lögskýringargagna, svo og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 10. júní 2017, er það mat kærunefndar að tilefni sé til þess að skoða mál kæranda aftur í ljósi breyttra aðstæðna sem uppi eru í málinu. Kærunefnd fellst því á að mál kæranda verði endurupptekið hjá nefndinni á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 40. gr. við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum. Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Af 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur kærunefnd útlendingamála túlkað ákvæðið með þeim hætti að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis enda sé flutningurinn á ábyrgð stjórnvalda.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. júní 2017 og hefur enn ekki yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum. Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun þann 14. júní sl., varðandi tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda, kom fram að ekkert í meðferð málsins fyrir stofnuninni benti til þess að kærandi hefði sjálfur tafið málið. Hins vegar hefði stofnunin ekki fengið tilkynningu fyrr en 12. júní sl. um að búið væri að úrskurða um beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa, þrátt fyrir að úrskurður þess efnis hefði verið kveðinn upp í apríl. Í ljósi framangreinds verður kærandi ekki talinn bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknarinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Skilyrði ákvæðisins eru því uppfyllt í máli kæranda. Það er því niðurstaða kærunefndar að leggja fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Það er niðurstaða kærunefndar að endurupptaka mál kæranda. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál hans til efnismeðferðar.  

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant’s request for re-examination of his case is granted.

The Directorate of Immigration shall examine the merits of the applicant’s application for international protection in Iceland.

 

Erna Kristín Blöndal                                            Anna Tryggvadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum