Hoppa yfir valmynd
11. júlí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 413/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 11. júlí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 413/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23060198

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […]

 

Málsatvik

Hinn 20. júní 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. apríl 2023, um að synja […9, fd. […], ríkisborgara Kólumbíu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila hinn 20. júní 2023. Hinn 26. júní 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar ásamt rökstuðningi.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hún fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að hún hyggist bera ákvörðun Útlendingastofnunar, sem staðfest hafi verið með úrskurði kærunefndar, undir dómstóla. Í greinargerð aðila kemur fram að aðili telji að fara þurfi fram heildarmat á aðstæðum aðila, með hliðsjón af þeirri málsmeðferð sem umsókn hennar um alþjóðlega vernd, hafi fengið á báðum stjórnsýslustigum.

Þá beri að líta til þess að aðili sé kona í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem þolandi kynferðisofbeldis í heimaríki. Það sé sérstaklega íþyngjandi og erfitt fyrir hana að þurfa að yfirgefa landið á meðan mál hennar sé til meðferðar hjá dómstólum og fara til Kólumbíu þar sem hún óttist hótanir, ofbeldi og ofsóknir. Aðili vísar til þess að mál hennar hafi verið til meðferðar í tvígang hjá Útlendingastofnun og í báðum tilvikum hafi kærunefnd útlendingamála talið verulegan annmarka vera á ákvörðunum stofnunarinnar. Við fyrri málsmeðferð hafi kærunefnd í úrskurði sínum nr. 541/2022, lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál aðila til nýrrar meðferðar þar sem aðstæður hennar og kvenna í Kólumbíu hafi ekki verið rannsakaðar með fullnægjandi hætti. Mál aðila hafi verið tekið til nýrrar meðferðar og með ákvörðun, dags. 24. apríl 2023 hafi Útlendingastofnun synjað aðila að nýju um alþjóðlega vernd. Kærunefnd hafi enn á ný komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Útlendingastofnunar væri haldin annmarka, þar sem stofnunin hafi ekki litið til aðstæðna í heimaborg aðila, Calí, heldur til aðstæðna í borginni Bógóta þar sem aðili hafi ekki búið. Kærunefndin hafi hins vegar metið það sem svo að nefndin hafi sjálf bætt úr þessum annmarka með því að horfa til aðstæðna í Calí.

Að mati aðila sé framangreint veikleikar á málsmeðferð sem styðji ekki við það meginmarkmið stjórnsýslukæru að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Kærunefnd hafi tekið undir að verulegir annmarkar hafi verið á málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli hennar og það veiki niðurstöðu sem hún hafi fengið í máli sínu. Því séu skilyrði til þess að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli aðila.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta verður til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfa að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hún höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hún sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hennar fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem henni eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020. 

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hennar. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum staða snúi hún aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu séu haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er ekki ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni aðila er hafnað.

The appellants request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir, settur varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum