Hoppa yfir valmynd
2. mars 2023 Innviðaráðuneytið

Fjórir umsækjendur um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins

Alls bárust fjórar umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins, sem auglýst var í janúar sl. Umsóknarfrestur rann út 31. janúar sl. en Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skipar í embættið frá og með 1. maí nk. 

Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Hún starfar í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Í henni eiga sæti Trausti Fannar Valsson, dósent í stjórnsýslurétti við lagadeild Háskóla Íslands, formaður, Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst og Kristján Skarphéðinsson, fv. ráðuneytisstjóri.

Umsækjendur um stöðu skrifstofustjóra eru í stafrófsröð:

  • Halla Sigrún Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
  • Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
  • Sandra Brá Jóhannsdóttir, sérfræðingur og fv. sveitarstjóri 
  • Sigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum