Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2022 Utanríkisráðuneytið

2022 verði ár batans

António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. - mynd

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, biðlar til aðildarríkja að skuldbinda sig til þess að gera árið 2022 að ári endurheimtar og bata eftir erfiðleika og bakslag síðustu ára. 

„Heimurinn tekur á móti 2022 með það fyrir augum að nú reyni verulega á vonir okkar um framtíðina, því við okkur blasir aukin fátækt og ójöfnuður, ójöfn dreifing bóluefna vegna COVID-19, skortur á skuldbindingum vegna loftslagsbreytinga, áframhaldandi átök, sundrung og upplýsingaóreiða,“ segir Guterres meðal annars í ávarpi sínu. Hann áréttaði þó að allt væru þetta áskoranir sem mannkyn geti staðist ef við skuldbindum okkur til þess að gera árið 2022 að ári batans, fyrir okkur öll. 

„Bata eftir heimsfaraldurinn, með djarfri áætlun um að bólusetja alla, alls staðar. Efnahagsbata, þar sem vel stæð ríki styðja þróunarríki með fjármögnun, fjárfestingu og niðurfellingu skulda. Bata eftir tortryggni og sundrung, með nýrri áherslu á vísindi, staðreyndir og skynsemi. Bata eftir átök, með samræðum, málamiðlunum og sáttum. Og bata fyrir plánetuna okkar, með loftslagsskuldbindingum sem eru í samræmi við umfang vandans og brýna þörf,“ segir Guterres.

Ávarp António Guterres má heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum