Hoppa yfir valmynd
11. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna fimmtán ára

Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna fimmtán ára. Ljósmynd © UN Photo/Perret - mynd

Í þessum mánuði eru fimmtán ár liðin frá því Sameinuðu þjóðirnar settu á fót sérstakan neyðarsjóð – Central Emergency Response Fund (CERF) – í þeim tilgangi að bregðast í skyndi við mannúðar- og neyðaraðstoð á átakasvæðum og í kjölfar náttúruhamfara. Neyðarsjóðurinn er ein af fjórum áherslustofnunum Íslands í mannúðaraðstoð.

Frá því sjóðurinn var stofnaður í mars 2006 hefur hann ráðstafað um 900 milljörðum bandarískra dala til lífsbjargandi stuðnings við fólk í eitt hundrað þjóðríkjum. Á síðasta ári veitti sjóðurinn matvælaaðstoð til sjö milljóna manna og veitti 5,5 milljónum kvenna og stúlkna vernd á átaka- og hamfarasvæðum.

CERF eykur viðbragðsflýti stofnana Sameinuðu þjóðanna og beinir sjónum að undirfjármögnuðum og gleymdum neyðarsvæðum. Sjóðurinn leggur áherslu á snemmtækar og skilvirkar aðgerðir til að draga úr manntjóni og neyð og grípur inn í þar sem neyðin er viðvarandi og gleymd.

Í þróunarsamvinnustefnu Íslands er lögð áhersla á fyrirsjáanleg framlög til mannúðaraðstoðar. Í samræmi við þá áherslu endurnýjaði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á síðasta ári rammasamning við CERF fyrir tímabilið 2020-2023. Ársframlög Íslands til sjóðsins nema 50 milljónum króna á ári en á sérstakri framlagsráðstefnu CERF seint á síðasta ári varð ákveðið að verja 40 milljónum króna í viðbótarframlag til sjóðsins.

Frá því að CERF var sett á laggirnar 2006 hefur mannúðarþörf í heiminum aukist margfalt. Þeim sem þurfa á mannúðaraðstoð og vernd að halda hefur fjölgað úr 32 milljónum manns árið 2006 í 260 milljón manns árið 2020, samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
2. Ekkert hungur
5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum