Hoppa yfir valmynd
14. september 2016 Dómsmálaráðuneytið

Árangursstjórnunarsamningur gerður við sýslumann á Norðurlandi eystra

Svavar Pálsson og Ólöf Nordal skrifuðu undir samninginn. - mynd
Embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra og innanríkisráðuneytið hafa gert með sér árangursstjórnunarsamning þar sem kveðið er á um gagnkvæmar skyldur ráðuneytisins og sýslumanns. Samningurinn er til fimm ára og undir hann skrifuðu Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Svavar Pálsson, sýslumaður á Norðurlandi eystra.

Tilgangur samningsins er að festa í sessi ákveðið samskiptaferli milli innanríkisráðuneytisins og embættis sýslumannsins á Norðurlandi eystra. Með samningnum á að skerpa áherslur um stefnumótun, verkefni, áætlunargerð og mat á árangri af starfsemi embættisins. Samningnum er einnig ætlað að styrkja beitingu árangursstjórnunar sem stýritækis hjá embættinu.

Í samningnum eru talin upp sérverkefni embættisins sem eru meðal annars:

  • Rekstur skrifstofu bótanefndar vegna greiðslu bóta til þolenda afbrota.
  • Verkefni tengd sanngirnisbótum.
  • Útgáfa leyfisbréfa til starfsréttinda héraðsdóms- og hæstaréttarlögmanna.
  • Skráning og eftirlit með skráðum trú- og lífsskoðunarfélögum.
  • Ákvarðanir tengdar kvaðabindingu arfs og niðurfellingu kvaðar.
  • Útgáfa leyfa til dreifingar ösku látins manns utan kirkjugarðs.
  • Útgáfa leyfa til tilfærslu líka í kirkjugarði eða flutning þeirra í annan kirkjugarð eða í grafreit.

Í samningnum eru settir mælikvarðar og viðmið í ýmsum flokkum svo sem í stjórnsýslu og þjónustu, mannauði og fjármálum. Má meðal annars nefna að embættið skal hafa forgöngu um reglulegt samráð við sveitarfélög um fyrirkomulag og samræmingu opinberrar þjónustu í umdæminu og leitast verður við að hafa reglulegar þjónustukannanir meðal viðskiptvina. Þá kveður samningurinn á um gagnkvæmar skyldur og ábyrgð samningsaðila. Sem fyrr segir gildir hann til fimm ára en hvor aðili fyrir sig getur óskað eftir endurskoðun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum