Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2019 Utanríkisráðuneytið

UN Women: Áhersla á götukynningar á 30 ára afmæli landsnefndarinnar

Götukynnarnir, t.f.v. Ólöf, Vera, Sigríður Þóra, Dima og Helga. Ljósm. UN Women. - mynd

Landsnefnd UN Women á Íslandi fagnar 30 ára afmæli í ár. Af því tilefni mun öflugur hópur ungs fólks á vegum samtakanna setja sterkan svip á borgina á næstu vikum. Þau munu ganga í hús á höfuðborgarsvæðinu, kynna starfsemi UN Women fyrir landsmönnum og bjóða þeim að taka þátt í starfi landsnefndarinnar á þessum merku tímamótum.

Á vef UN Women á Íslandi segir að mánaðarleg framlög frá einstaklingum séuu dýrmætasta og árangursríkasta fjáröflunarleið landnefndarinnar og fjöldi þeirra sem leggja samtökunum lið með mánaðarlegum framlögum hafi aukist gríðarlega frá ári til árs. „Allt frá upphafi hafa götukynnar samtakanna gegnt lykilhlutverki við að afla mánaðarlegra styrkja til verkefna UN Women,“ segir í fréttinni.

„Götukynningar eru frábær leið til að eiga innihaldsrík samtöl við landsmenn um kynjajafnrétti. Fólk hefur tekið þeim gífurlega vel og í gegnum tíðina hafa götukynningar verið árangursríkasta leið samtakanna til að safna fjármagni sem gera konum um allan heim kleift að öðlast tækifæri til að taka virkan þátt í leik og starfi án ótta við ofbeldi,“ segir Snædís Baldursdóttir, fjáröflunarstýra UN Women á Íslandi.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum