Hoppa yfir valmynd
27. júní 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Opinn fundur í Reykjavík í dag: Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Fundurinn á höfuðborgarsvæðinu fer fram á Grand hótel í dag kl. 17:00 og er opinn öllum. - mynd

Hringferð ráðherra vegna landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks stendur sem hæst og síðdegis í dag fer fram opinn samráðsfundur á höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel og hefst kl. 17:00. Verið öll hjartanlega velkomin. 

Guðmundur Ingi býður þessar vikurnar til samráðsfunda um landið vegna landsáætlunar og í gær fór fram vel heppnaður fundur á Selfossi og í síðustu viku á Ísafirði og Egilsstöðum.

Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og fólk er hvatt til að mæta og taka þátt. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun þjónustu við fatlað fólks á Íslandi.

  • Skrá þátttöku
    Ef þörf er á táknmálstúlkun, rittúlkun eða annarri sérstakri aðstoð er mikilvægt að það komi fram við skráningu

Viðkomustaðir í hringferðinni:

22. maí – Reykjanesbær kl. 17 (Bíósalur í Duus-safnahúsum)

24. maí – Borgarnes kl. 17 (B-59)

19. júní – Akureyri kl. 17 (Hof – Hamrar)

21. júní – Ísafjörður kl. 12 (Edinborgarhúsið)

22. júní – Egilsstaðir kl. 17 (Berjaya Hérað Hotel)

26. júní – Selfoss kl. 17 (Hótel Selfoss)

27. júní – Reykjavík kl. 17 (Grand hótel – Háteigur)

15. ágúst – Höfn kl. 12 (Nýheimar þekkingarsetur)

18. ágúst – Sauðárkrókur kl. 17 (Grána Bistro)

29. ágúst – Rafrænn fundur fyrir allt landið kl. 17

Dagskrá:

Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma.

Fundirnir fara þannig fram að ráðherra flytur opnunarávarp og kynnt eru nokkur þeirra verkefna sem tilheyra landsáætluninni. Fulltrúar heildarsamtaka fatlaðs fólks fjalla um sínar áherslur og framtíðarsýn og starf notendaráða er kynnt. Að lokum býður ráðherra til samtals við viðstadda um það sem þeim er efst í huga.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum