Hoppa yfir valmynd
17. ágúst 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 278/2022 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 278/2022

Miðvikudaginn 17. ágúst 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 25. maí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 17.572 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. maí 2021. Með bréfi, dags. 1. júní 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 16. júní 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. júní 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru spyr kærandi hvernig hann geti skuldað 37.830 kr. ef tekjuáætlun sé hærri en tekjurnar sem hann hafi haft á tímabilinu janúar til desember 2021 en þurfi engu að síður að greiða til baka rúmar 17.000 kr. Kærandi vilji meina að hann eigi þessa fjárhæð inni en skuldi hana ekki.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með ellilífeyri allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 17.572 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að endanlegar tekjur kæranda á árinu 2021 hafi reynst hærri en innsend tekjuáætlun í janúar 2021 hafi gert ráð fyrir og greitt hafi verið eftir mestallt árið 2021. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi skilað inn tekjuáætlun þann 12. janúar 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir 2.950.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 60.000 kr. í launatekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna 15.000 kr. í vexti af innistæðum. Tryggingastofnun hafi reiknað bætur kæranda fyrir janúarmánuð 2021 út frá tekjuáætlun sem hafi hljóðað upp á 2.852.064 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 1.174.473 kr. í launatekjur og 12.720 kr. sameiginlegar tekjur þeirra hjóna í vexti af innistæðum. Tryggingastofnun hafi samþykkt nýja áætlun með bréfi, dags. 12. janúar 2021, þar sem komi fram að fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 2.305 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins. Kæranda hafi verið greitt samkvæmt þessari áætlun út nóvember 2021.

Við reglulegt eftirlit Tryggingastofnunar í apríl hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá. Tryggingastofnun hafi búið til nýja tekjuáætlun á grundvelli upplýsinga úr staðgreiðsluskrá. Í henni hafi verið gert ráð fyrir að kærandi hefði 503.135 kr. í launatekjur en að öðru leyti væri tekjuáætlunin óbreytt. Þessar breytingar hafi ekki haft áhrif á bætur kæranda.

Kærandi hafi skilað inn nýrri tekjuáætlun þann 17. nóvember 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir hækkun lífeyrissjóðstekna í 3.010.000 kr. en að öðru leyti hafi hún verið óbreytt. Tryggingastofnun hafi sent kæranda bréf, dags. 17. nóvember 2021, þar sem honum hafi verið tilkynnt að bótaréttur hans hefði verið endurreiknaður og að fyrir lægi ofgreiðsla að fjárhæð 15.656 kr. sem yrði ekki innheimt fyrr en að loknu uppgjöri bóta ársins.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að kærandi hefði verið með 3.008.887 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 466.870 kr. í launatekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hafi verið 14.548 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 2.044.434 kr. en hefði átt að fá greitt 2.016.116 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 17.572 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu og áður myndaðra krafna.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2021. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt.

Í 6. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli hafa eftirlit með því að áætlaðar tekjur séu í samræmi við upplýsingar sem stofnunin afli úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda eða frá öðrum þeim aðilum sem getið sé um í 40. gr. laganna. Í 1. málsl. 1. mgr. 45. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að Tryggingastofnun skuli reglubundið sannreyna réttmæti bóta, greiðslna og upplýsinga sem ákvörðun um réttindi byggist á. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er Tryggingastofnun heimilt að endurskoða grundvöll bótaréttar hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum sem hafi orðið á aðstæðum greiðsluþega.

Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar, ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins gerði Tryggingastofnun ráð fyrir að á árinu 2021 fengi kærandi 2.852.064 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 1.174.473 kr. í launatekjur og 12.720 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Kærandi lagði fram breytta tekjuáætlun, dags. 12. janúar 2021, þar sem hann gerði ráð fyrir 2.950.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 15.000 kr. sameiginlegar fjármagnstekjur með maka, 60.000 kr. í launatekjur og 2.400 kr. í iðgjald í lífeyrissjóð. Með bréfi, dags. 12. janúar 2021, samþykkti Tryggingastofnun tekjuáætlun kæranda og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar í samræmi við þær tekjuforsendur. Í framangreindu bréfi var kærandi upplýstur um áætlaða kröfu að fjárhæð 2.305 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu fyrir framangreint tímabil. Við samtímaeftirlit Tryggingastofnunar kom í ljós að kærandi var með launatekjur og var því gert ráð fyrir 503.135 kr. í launatekjur á árinu en þar sem þær tekjur höfðu ekki áhrif á greiðslur til kæranda breyttust greiðslur ekki vegna þessara nýju upplýsinga. Kærandi lagði fram breytta tekjuáætlun 17. nóvember 2021 þar sem lífeyrissjóðstekjur voru hækkaðar í 3.010.00 kr. á árinu. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 17. nóvember 2021, var beiðni kæranda um breytingu á tekjuáætlun samþykkt og hann upplýstur um áætlaða kröfu að fjárhæð 15.656 kr. Bótaréttindi voru því reiknuð og bætur greiddar út miðað við þær forsendur út árið 2021.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust tekjur kæranda á árinu 2021 hafa verið 466.870 kr. í launatekjur, 3.008.887 kr. í lífeyrissjóðstekjur, og 14.548 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós að kærandi hafði fengið ofgreitt í bótaflokkunum ellilífeyrir og orlofs- og desemberuppbót, samtals að fjárhæð 17.572 kr., að teknu tillit til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Kærandi heldur því fram í kæru að hann eigi ekki að skulda Tryggingastofnun heldur ætti hann að eiga inneign hjá stofnuninni þar sem tekjur hans hafi reynst lægri en miðað hafi verið við í tekjuáætlun. Ljóst er að lífeyrissjóðstekjur kæranda reyndust lægri samkvæmt skattframtali en gert var ráð fyrir í tekjuáætluninni sem hann lagði fram 17. nóvember 2021. Aftur á móti er ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda sú að lífeyrissjóðstekjur kæranda voru vanáætlaðar í tekjuáætlunum sem lagðar voru til grundvallar greiðslum út nóvember 2021. Kærandi var tvisvar á árinu upplýstur um áætlaðar kröfu í kjölfar breytinga á tekjuáætlun, annars vegar kröfu að fjárhæð 2.305 kr. með bréfi, dags. 12. janúar 2021, og hins vegar kröfu að fjárhæð 15.656 kr. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum