Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2008 Innviðaráðuneytið

Málþing um almenningssamgöngur 7. febrúar

Samgönguráð efnir til málþings um almenningssamgöngur fimmtudaginn 7. febrúar. Verður það haldið á Grand hóteli og hefst klukkan 15. Aðgangur er ókeypis.

Fyrirlesarar verða Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, Norðmaðurinn Gunnar Eiterjord, yfirmaður samgöngudeildar Rogalands, og Þjóðverjinn Manfred Bonz, fyrrverandi forstjóri almenningsvagnanna í Stuttgart. Vonast er eftir góðri þátttöku fulltrúa sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu en aðgangur er öllum heimill.

Páll Brynjarsson er formaður nefndar fulltrúa samgönguráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um almenningssamgöngur og mun hann greina frá helstu niðurstöðum í starfi nefndarinnar.

Gunnar Eiterjord mun í fyrirlestri sínum fjalla um almenningssamgöngur í Stavanger og nágrenni en þar hefur tekist að auka hlut almenningssamgangna.

Manfred Bonz kynnir almenningsvagnakerfið í Stuttgart sem í tíð hans fékk viðurkenningu sem besta almenningssamgöngukerfi heims. Manfred Bonz hefur oftsinnis komið til Íslands og mun hann einnig fjalla um möguleika á að auka þátt almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Málþingið er öllum opið og eru væntanlegir þátttakendur hvattir til að skrá sig með tilkynningu í tölvupósti á netfangið [email protected].



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum