Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Stjórnandi nýrrar gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu skipaður

Ráðherra ásamt Sigríði - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing í velferðarráðuneytinu, til að fara með stjórn nýrrar gæða- og eftirlitstofnunar á sviði félagsþjónustu. Skipunin er til fimm ára. Ákvörðun ráðherra er í samræmi við niðurstöðu ráðgefandi nefndar sem mat Sigríði hæfasta úr hópi 22 umsækjenda um embættið.

Sigríður er með BA gráðu í almennum þjóðfélagsfræðum og framhaldsgráðu frá háskólanum í Manchester. Í umsögn hæfnisnefndar segir að Sigríður hafi varið starfsævi sinni innan félagsmálageirans, fyrst sem ráðgjafi innan félagsþjónustu og sérfræðingur en síðar sem millistjórnandi. Á þeim tíma hafi hún látið mikið til sín taka í rannsóknum og þróun gæðastarfs. Þá hafi hún starfað við undirbúning hinnar nýju stofnunar hjá velferðarráðuneytinu:

„Sigríður hefur afar yfirgripsmikla þekkingu á starfssviði hinnar nýju stofnunar sem og á opinberri stjórnsýslu. Hún er reyndur stjórnandi og hefur djúpan skilning á tilgangi og hlutverki hinnar nýju stofnunar. Hún hefur áratuga reynslu af vinnu við upplýsingaöflun, gagnavinnslu, gæðamat og árangursmat og hefur skarpa framtíðarsýn fyrir hönd stofnunarinnar“ segir meðal annars í umsögn hæfnisnefndarinnar.

Stjórnsýsla félagsþjónustu efld og eftirlit með þjónustunni aukið

Nýja stofnunin mun annast stjórnsýslu og eftirlit með félagsþjónustu sem veitt er af hálfu sveitarfélaga, opinberra stofnana eða á grundvelli samninga. Undir félagsþjónustu sveitarfélaga heyrir meðal annars ýmis þjónusta sem snýr að börnum, fjölskyldum, fötluðu fólki, öldruðum og innflytjendum. Stefnt er að því að eftirlit með barnaverndarmálum sem nú er á hendi Barnaverndarstofu verði einnig á ábyrgð stofnunarinnar og er unnið að gerð lagafrumvarps þess efnis í velferðarráðuneytinu.

Ákvörðun um að fela þessi verkefni sérstakri stofnun byggist á tillögum nefndar sem ráðherra félagsmála skipaði árið 2014 með það að markmiði að styrkja undirstöður heildstæðrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga og skilja með skýrum hætti á milli stjórnunar- og eftirlitshlutans annars vegar og veitingu þjónustunnar hins vegar.

Nýja stofnunin er ráðuneytisstofnun og fer um skipulag hennar samkvæmt 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands. Áætlað er að stofnunin taki til starfa innan fárra vikna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum