Hoppa yfir valmynd
20. maí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 183/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 20. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 183/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20050006

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 28/2020, dags. 29. janúar 2020, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2019, um að taka ekki umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Gambíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 3. febrúar 2020. Þann 4. maí 2020 leiðbeindi kærunefnd kæranda, með vísan til þeirrar stöðu sem uppi sé vegna Covid-19 faraldursins, að óska eftir endurupptöku máls hans hjá nefndinni. Þann 7. maí 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku máls hans.

Af beiðni kæranda um endurupptöku máls hans má ráða að hún byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku máls hans er vísað til tilkynningar dómsmálaráðuneytisins, dags. 31. mars 2020, um breytt mat Útlendingastofnunar vegna Covid-19 faraldursins. Þar komi fram að ljóst sé að útbreiðsla Covid-19 veirunnar hafi mikil áhrif á málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Með hliðsjón af þessu fordæmalausa ástandi hafi Útlendingastofnun tilkynnt ráðuneytinu að stofnunin muni tímabundið aðlaga mat sitt á því hvort taka beri Dyflinnar- og verndarmál til efnismeðferðar, að virtum þessum sérstöku aðstæðum sem nú séu uppi. Matið verði reist á því hvort gera megi ráð fyrir annars vegar að mál falli á tímafresti vegna ferðatakmarkana og hins vegar hvort áhrif Covid-19 á innviði ríkis verði slík að endurskoða þurfi einstaklingsbundið mat á aðstæðum í viðkomandi ríki þegar ferðatakmörkunum verði aflétt. Umrædd breyting muni óhjákvæmilega leiða til þess að nokkur fjöldi umsækjenda í Dyflinnar- og verndarmálum fái efnismeðferð hér á landi. Í kjölfarið hafi Útlendingastofnun afturkallað töluverðan fjölda ákvarðana sem kærðar höfðu verið til kærunefndar útlendingamála og voru enn í vinnslu hjá nefndinni.

Þann 4. maí sl. hafi talsmanni kæranda borist tölvupóstur frá kærunefnd þar sem kæranda hafi verið leiðbeint um að óska eftir endurupptöku á máli sínu hjá nefndinni, með vísan til þeirrar stöðu sem uppi sé vegna Covid-19 faraldursins. Kærandi krefst þess að mál hans verði endurupptekið hjá kærunefnd og að ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2019, um að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar hans og vísa honum aftur til Ítalíu verði felld úr gildi og stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda þann 29. janúar 2020. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærandi hefði slík tengsl við landið að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka ætti umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Af endurupptökubeiðni kæranda má ráða að hann byggi beiðni sína um endurupptöku á því að aðstæður í máli hans hafi breyst vegna heimsfaraldursins Covid-19.

Við úrlausn málsins hefur kærunefnd litið til hinna sérstöku aðstæðna sem eru uppi í ljósi Covid-19 faraldursins, þeirra erfiðleika sem Ítalía hefur glímt við vegna hans, þeirra áhrifa sem hann kann að hafa á aðstæður flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og þeirrar óvissu sem ríkir um framhaldið. Þá hefur kærunefnd jafnframt litið til forsendna úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 28/2020 og málsins í heild. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að aðstæður á Ítalíu hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli kæranda var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd fellst því á beiðni kæranda um endurupptöku málsins.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Samkvæmt gögnum málsins liggur fyrir að kærandi hefur notið þjónustu bæði lækna og sálfræðings á Göngudeild sóttvarna vegna andlegra veikinda sinna. Í úrskurði kærunefndar í máli kæranda, dags. 29. janúar 2020, byggði kærunefnd á því að ekki væru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem lægju fyrir um aðstæður á Ítalíu og gagna í málinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi gæti leitað sér viðhlítandi aðstoðar á Ítalíu vegna heilsufarsvandamála sinna. Var það mat kærunefndar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að ekki væru fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæltu með því að mál hans yrði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frá því að kærunefnd útlendingamála úrskurðaði í máli kæranda þann 29. janúar 2020 hafa aðstæður breyst verulega í viðtökuríkinu með tilkomu Covid-19 faraldursins. Ljóst er að faraldurinn mun hafa verulegar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar sem og neikvæð áhrif á innviði ríkisins. Að mati kærunefndar getur þetta leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Þá liggur fyrir að vegna útbreiðslu Covid-19 faraldursins hafa mörg ríki, þ.m.t. viðtökuríkið, sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en óvíst er hvenær opnað verði aftur fyrir endursendingar.

Í ljósi þeirra áskorana sem viðtökuríkið hefur glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að innviðum og lagalegum réttindum og með vísan til þeirra erfiðleika sem ætla má að Covid-19 faraldurinn leiði til í ríkinu telur kærunefnd, að svo stöddu, að ástæða sé til að ætla að ekki sé um að ræða svo tímabundið ástand að hjá því verði litið.

Að mati kærunefndar mæla því sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með því að mál kæranda verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Ítalíu og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiðir að öðru leyti.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á, að fella beri úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og leggja fyrir stofnunina að taka mál hans til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of his case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Árni Helgason                                                                                                             Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum