Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 309/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 309/2016

Miðvikudaginn 8. febrúar 2017

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. ágúst 2016, kærði B, f.h. eiginkonu sinnar A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2016, annars vegar niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2015 og hins vegar innheimtu ofgreiddra bóta.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða Tryggingastofnunar ríkisins á endurreikningi og uppgjöri tekjutengdra bóta ársins 2015 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 57.882 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu hennar með bréfum, dags. 21. júní 2016.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. ágúst 2016. Með bréfi, dags. 29. ágúst 2016, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 23. september 2106, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. september 2016. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en ráða má af kæru að kærandi óski eftir því að ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2015 og innheimtu ofgreiddra bóta verði endurskoðaðar.

Í kæru segir að kærandi hafi undanfarið ár 2015 greitt rúmlega 5.000 kr. í hverjum mánuði vegna ofgreiddra bóta. Um síðustu áramót hafi framlag Tryggingastofnunar ríkisins til kæranda lækkað í rúmar 1.200 kr. á mánuði.

Stofnunin rukki enn og þá um rúmar 3.000 kr. í hverjum mánuði og skuld kæranda sé talin vera 57.882 kr. Óskað er upplýsinga um hvort þetta geti verið rétt.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að í 8. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar með síðari breytingum hafi verið kveðið á um að þegar lífeyrir og bætur honum tengdar féllu niður samkvæmt 5. mgr. hafi verið heimilt að greiða elli- og örorkulífeyrisþegum, sem dvöldust á sjúkrahúsum hér á landi, vasapeninga að ákveðinni fjárhæð á mánuði. Við útreikning á fjárhæð vasapeninga skyldu tekjur skerða vasapeninga um 65%. Vasapeningar hafi fallið alveg niður við tekjur sem námu tiltekinni fjárhæð á ári. Með tekjum sé átt við tekjur eins og þær séu skilgreindar í 16. gr. laga um almannatryggingar og um útreikning tekna fari samkvæmt sömu grein. Um ákvæðið hafi verið sett reglugerð nr. 460/2013. Rétt sé að vekja athygli á því að bótaflokkurinn vasapeningar sé ekki lengur til og frá og með 1. janúar 2016 sé bótaflokkurinn ráðstöfunarfé kominn í hans stað, sbr. lög nr. 88/2015 og reglugerð nr. 1231/2015.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga um tekjuskatt nr. 90/2003 um hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni sé svo ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun ríkisins endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Stofnunin hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Þar komi fram sú skylda stofnunarinnar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Kærandi hafi fengið greidda vasapeninga allt árið 2015. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 57.882 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast í uppgjöri á hendur kæranda sé sú að þegar samkeyrsla við tekjuupplýsingar af skattframtali 2016 vegna tekjuársins 2015 fór fram, hafi komið í ljós að tekjur kæranda reyndust hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir. Endurreikningur hafi byggst á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega lögum samkvæmt.

Kæranda hafi verið send tekjuáætlun vegna ársins 2015 með bréfi, dags. 14. janúar 2015, þar sem gert hafi verið ráð fyrir því að hún hefði X kr. í lífeyrissjóðstekjur og X kr. í fjármagnstekjur á árinu. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við tillögu stofnunarinnar. Við bótauppgjör ársins 2015 hafi komið í ljós að kærandi væri með X kr. í lífeyrissjóðstekjur og X kr. í fjármagnstekjur. Þessi mismunur hafi leitt til þess að vasapeningar voru ofgreiddir.

Tryggingastofnun ríkisins sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Stofnuninni sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2015 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greiddar 114.072 kr. það ár en hefði átt að fá 21.756 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 57.882 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Með vísan til framangreinds telji stofnunin ekki forsendur til að breyta hinni kærðu ákvörðun.

Stofnunin veki athygli á því að kæranda sé heimilt að sækja um niðurfellingu á endurkröfunni á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2015 og innheimtu ofgreiddra bóta.

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2015. Samkvæmt 39. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007 er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar, með síðari breytingum, er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Á grundvelli 7. mgr. þeirrar lagagreinar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.

Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreiking og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Gögn málsins sýna fram á að tekjuáætlun kæranda fyrir árið 2015 gerði ráð fyrir X kr. í lífeyrissjóðstekjur og X kr. í fjármagnstekjur. Samkvæmt upplýsingum úr skattframtali kæranda vegna tekjuársins 2015 reyndust lífeyrissjóðstekjur hins vegar hærri eða X kr. en fjármagnstekjur reyndust lægri eða X kr. Ástæðu ofgreiðslu bótanna er því að rekja til vanáætlunar tekna í tekjuáætlun sem var forsenda Tryggingastofnunar við útreikning og greiðslu bóta á árinu 2015.

Tekjuáætlun kæranda gerði ráð fyrir lægri lífeyrissjóðstekjum en skattframtal vegna tekjuársins 2015 sýndi fram á, en um er að ræða tekjustofn sem hefur áhrif á bótarétt, sbr. 2. mgr. 16. gr. laganna og einnig 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi bótaþega og er það á ábyrgð bótaþega sem nýtur tekjutengdra bóta að hafa gætur á því að tekjuáætlun sé rétt og í samræmi við þær tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári, sbr. áðurnefnda 39. gr. laga um almannatryggingar. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur. Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur yfirfarið útreikninga Tryggingastofnunar ríkisins og fellst á að kærandi hafi fengið ofgreiddar bætur að fjárhæð 57.882 kr. á árinu 2015.

Í 2. mgr. 55. gr. laga um almannatryggingar segir að séu tekjutengdar bætur samkvæmt lögunum ofgreiddar af Tryggingastofnun eða umboðum hennar skuli það sem ofgreitt sé dregið frá öðrum tekjutengdum bótum sem bótaþegi síðar öðlast rétt til. Þetta eigi eingöngu við ef tekjur á ársgrundvelli séu hærri en lagt var til grundvallar við útreikning bóta og ofgreiðsla stafar af því að bótaþegi hefur ekki tilkynnt stofnuninni um tekjuaukninguna eða aðrar breyttar aðstæður. Að þessu ákvæði virtu liggur fyrir að stofnunin hefur heimild til þess að draga fjárhæð ofgreiddra bóta til kæranda, sem réttilega reyndist vera að fjárhæð 57.882 kr., frá þeim bótum sem hún hefur öðlast rétt til eftir að niðurstaða um ofgreiddar bætur lá fyrir.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2015 og þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu þeirrar ofgreiðslu.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör vegna tekjutengdra bótagreiðslna A, á árinu 2015 og innheimtu ofgreiddra bóta eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum