Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2006 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 14. nóvember 2006

FUNDARGERÐ

Ár 2006, þriðjudaginn 14. nóvember, var haldinn fundur í mannanafnanefnd. Fundurinn fór fram að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Baldur Sigurðsson og Ágústa Þorbergsdóttir.  Eftirfarandi mál voru tekin fyrir:

 

 

1.         Mál nr. 49/2006.      Millinafn:        Kjarrval

 
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

  

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um millinafnið Kjarrval er hafnað.

 

 

 

 

2.         Mál nr. 75/2006.      Millinafn:        Malm    eða

                                                Eiginnafn:      Malm  (kk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

(1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu. (4) Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karl-mannsnafn. (5) Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

(1) Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. (2) Nöfn sem hafa aðeins unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn. Þó er eiginnafn foreldris í eignarfalli heimilt sem millinafn. (3) Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (4) Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2004 og sem byggðar eru á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum:

 

1.  Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju

eftirfarandi skilyrða:

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum (með Íslendingum er átt við þá íslensku ríkisborgara sem eiga eða hafa átt lögheimili hér á landi);
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera engir Íslendingar eiginnafnið Malm eða milli-nafnið Malm og því hefur hvorki nafnið né ritháttur þess unnið sér hefð í íslensku máli, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Nafnið Malm er hins vegar viðurkennt ættarnafn erlendis, m.a. í Svíþjóð.

 

Í fyrsta lagi er ekki unnt að fallast á nafnið Malm sem eiginnafn. Mjög óheppilegt er að erlend ættarnöfn (fyrir bæði kynin) séu notuð sem eiginnöfn á Íslandi, þar sem eiginnafn verður að vera annaðhvort karlmannsnafn eða kvenmannsnafn, sbr. 5. gr. laga nr. 45/1996. Í öðru lagi er ekki unnt að fallast á nafnið Malm sem millinafn þar sem nafnið er ekki dregið af íslenskum orðstofni og er því ekki gjaldgengt sem millinafn skv. 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Malm (kk.) og millinafnið Malm er hafnað.

 

 

3.         Mál nr. 76/2006.      Eiginnafn:      Aðils  (kk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

(1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu. (4) Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karl-mannsnafn. (5) Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er nafnið Aðils ættarnafn sem tekið var upp árið 1917. Óheimilt er að samþykkja skráð ættarnöfn sem eiginnöfn á mannanafnaskrá. Þar að auki tekur nafnið Aðils (kk.) ekki beygingu í eignarfalli. Því er beiðni um eiginnafnið Aðils (kk.) hafnað.

 

Að lokum skal úrskurðarbeiðendum bent á, að ef skilyrði 7. gr. mannanafnalaga nr. 45/1996 eru fyrir hendi geta þeir sótt um að fá nafnið Aðils skráð sem sérstakt millinafn í Þjóðskrá en nafnið fer ekki á mannanafnaskrá.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Aðils (kk.) er hafnað.

 

 

 

 

4.         Mál nr. 77/2006.      Eiginnafn:      Gull  (kvk.)

  

Afgreiðslu málsins er frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.

 

 

 

 

5.         Mál nr. 78/2006.      Eiginnafn:      Mosi  (kk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Mosi (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Mosa, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Mosi (kk.) er samþykkt en nafnið skal ekki fært á mannanafna-skrá fyrr en skráning þess hefur verið framkvæmd hjá Þjóðskrá.

 

 

 

 

6.         Mál nr. 79/2006.      Eiginnafn:      Svea  (kvk.)

  

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Svea (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Sveu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Svea (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 

7.         Mál nr. 80/2006.      Eiginnafn:      Eybjört  (kvk.)

 

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 

Eiginnafnið Eybjört (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Eybjartar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Eybjört (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum