Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2017 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 58/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 31. janúar 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 58/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU16120062

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 3. janúar 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. desember 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Spánar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar. sbr. 2. og 3. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests sbr. sama ákvæði.

Þann 1. janúar 2017 tóku gildi ný lög um útlendinga nr. 80/2016. Samkvæmt 2. mgr. 121. gr. laganna gilda ákvæði þeirra um mál sem bárust kærunefnd útlendingamála fyrir gildistöku laganna en höfðu ekki verið afgreidd með úrskurði. Fer því um mál þetta samkvæmt ákvæðum laga nr. 80/2016.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. október 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þá var kærandi með útrunna vegabréfsáritun útgefna af spænskum yfirvöldum. Þann 27. október 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Spáni, sbr. 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 17. nóvember 2016 barst svar frá spænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 15. desember 2016 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Spánar. Kærandi kærði ákvörðunina þann 3. janúar 2017 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 20. desember 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 10. janúar 2017.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Spánar. Lagt var til grundvallar að Spánn virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Spánar ekki í sér brot gegn 45. gr. þágildandi laga um útlendinga nr. 96/2002. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a þágildandi laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Spánar, sbr. d-lið 1. mgr. 46. gr. a þágildandi laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann vilji ekki fara til Spánar þar sem margir [...] glæpamenn séu þar í landi. Hann óttist að þeir aðilar sem hann eigi í útistöðum við í [...] hafi tengsl við [...] glæpamenn á Spáni og að hann sé í raun í lífshættu í [...] og á Spáni. Þessir menn njóti verndar yfirvalda í [...] og dreifist víðsvegar um Evrópu. Kærandi upplifi sig öruggan hér á landi en hann hafi aldrei komið til Spánar.

Þá er í greinargerð kæranda fjallað um ákvæði 36. og 42. gr. laga um útlendinga ásamt athugasemdum við þessi ákvæði í frumvarpi til laga um útlendinga. Sérstakar ástæður, sbr. 2. mgr. 36. gr. laganna, mæli með því að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi ef svo standi á sem í greini í 1. mgr. 36. gr. Þá leiði 1. og 2. mgr. 42. gr. laganna, um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu, til þess að taka skuli umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Ljóst sé að fyrir liggi skýr lagaleg heimild til handa íslenskum stjórnvöldum til að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar og jafnvel skylda í tilteknum tilvikum.

Þá segir í greinargerð kæranda að meira en tvöföld aukning hafi orðið á umsóknum um alþjóðlega vernd á Spáni árið 2015 samanborið við árið á undan. Ný lög um útlendinga hafi tekið gildi á Spáni þann 30. mars 2015 en ein helsta ástæða lagabreytingarinnar hafi verið lögleiðing á hópbrottflutningum innflytjenda og umsækjenda um alþjóðlega vernd sem komi til Spánar frá strandarborgunum Ceuta og Mellia en þar séu aðstæður afar slæmar. Meðal þeirra sem hafi lýst yfir áhyggjum af hinum nýju lögum séu Amnesty International og nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum. Hópbrottvísanir umsækjenda um alþjóðlega vernd sem ekki hafi fengið einstaklingsbundið mat á stöðu sinni, brottvísanir einstaklinga til landa þar sem fyrirséð var að þeir væru í hættu á að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, hindrun á komu umsækjenda inn í landið og barsmíðar borgarvarða á einstaklingum séu gríðarlegt áhyggjuefni. Þá vísar kærandi til skýrslu Evrópunefndar Evrópuráðsins um forvarnir gegn pyndingum og ómannúðlegri meðferð eða niðurlægjandi meðferð eða refsingu (e. European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment) hvað varðar illa meðferð á fólki og slæman aðbúnað í Melilla og varðhaldsmiðstöðvunum Zona Franca í Barselóna og Aluche í Madríd. Niðurstaða skýrslunnar sýni að nánast engar framfarir hafi orðið í þessum málum.

Sæki einstaklingar ekki um alþjóðlega vernd á innan við mánuði frá komu sinni til landsins þá sé stjórnvöldum heimilt að beina umsókn þeirra í flýtimeðferð. Í framkvæmd sé þó flestum þeirra hafnað. Þá kveði lög landsins á um að hafi einstaklingur ekki fengið svar við umsókn sinni á fyrsta stjórnsýslustigi innan sex mánaða jafngildi það synjun um alþjóðlega vernd. Ekki séu öll viðtöl við umsækjendur tekin af starfsmönnum innanríkisráðuneytisins þar sem mörg þeirra séu tekin af lögreglumönnum eða landamæravörðum sem einnig hafi heimild til þess.

Jafnframt segir í greinargerð kæranda að heimild stjórnvalda til að synja umsókn einstaklings um alþjóðlega vernd við landamærin eða í varðhaldsmiðstöðvunum sé gríðarlega almenn og óljós. Fresturinn til að áfrýja slíkri ákvörðun til æðra stjórnvalds sé einungis tveir virkir dagar frá birtingu hennar. Þessi skammi áfrýjunarfrestur grafi undan möguleikum einstaklinga til að halda máli sínu til streitu í kerfinu því mikil áhersla sé lögð á að vísa einstaklingum samstundis frá landi. Umsækjendur um alþjóðlega vernd sem ákveði að fara áfram með mál sín í kerfinu geti þurft að bíða upp undir tvö ár eftir lokaniðurstöðu í þeim. Þeir eigi hins vegar ekki rétt á húsnæði eða annarri félagslegri aðstoð fyrir umsækjendur hafi þeir dvalið í landinu í meira en 12 mánuði.

Þá er í greinargerð kæranda vísað til þess að þann 18. febrúar 2016 hafi franskur stjórnsýsludómstóll ógilt niðurstöðu í máli umsækjanda um alþjóðlega vernd frá Kamerún um endursendingu til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en hann hafi gefið fingraför sín þar í landi en ekki sótt um alþjóðlega vernd. Dómstóllinn hafi talið að frönsk yfirvöld hafi ekki kannað persónulegar aðstæður umsækjanda nægilega áður en ákvörðun hafi verið tekin um endursendingu. Jafnframt greinir kærandi frá niðurstöðu belgíska ráðsins í málefnum útlendinga frá 25. mars 2016 þar sem ákvarðað hafi verið að ekki skyldi endursenda fjölskyldu til Spánar í ljósi skorts á fullnægjandi sönnun þess að móttökuskilyrði þar í landi væru viðeigandi.

Í greinargerð kæranda segir enn fremur að vísbendingar séu um að hatursglæpir séu vandamál á Spáni og hluta þeirra megi rekja til kynþáttafordóma.

Að lokum er í greinargerð kæranda bent á að kerfisbundinn galli á aðbúnaði og meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríki sé ekki ákvörðunarástæða fyrir því að umsókn sé tekin til meðferðar í öðru aðildarríki en því sem ber ábyrgð skv. Dyflinnarreglugerðinni. Það fái stoð í niðurstöðu Hæstaréttar Bretlands frá 2014 og greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu frá desember 2015. Í greinargerð innanríkisráðuneytisins komi meðal annars fram að nýlegir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu hafi skýrt að það sé ekki nauðsynlegt að sýna fram á kerfislæga annmarka á málsmeðferð eða móttöku umsækjenda í viðtökulandinu heldur skuli miða við það hvort veruleg ástæða sé til að ætla að hlutaðeigandi einstaklingur standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð í viðtökuríkinu sem samrýmist ekki 3. gr. mannréttindasáttmálans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að spænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Spánar er byggt á því að kærandi hafi fengið útgefna vegabréfsáritun af spænskum yfirvöldum.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Spáni, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Asylum Information Database, Country Report: Spain (European Council on Refugees and Exiles, 18. apríl 2016)

· 2015 Country Reports on Human Rights Practices – Spain (United States Department of State, 13. apríl 2016)

· Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Spain (UNHCR, júní 2014)

· Freedom in the World 2016 – Spain (Freedom House, 14. júlí 2016)

· Amnesty International Report 2015/16 – Spain (Amnesty International, 24. febrúar 2016)

· Concluding observations on the sixth periodic report of Spain (UN Committee against Torture, 29. maí 2015)

· Report to the Spanish Government on the visit to Spain carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment from 14 to 18 july 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 9. apríl 2015)

· Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Spain from 3 to 7 June 2013 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 9. október 2013)

· Upplýsingar af vefsíðu borgarráðs Barselóna (ciutatrefugi.barcelona/en)

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Spáni eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og fá aðstoð túlks ef þess þarf. Auk þess eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á lögfræðiþjónustu við að leggja fram umsókn og eftir atvikum við kærumeðferð máls. Þeir sem fengið hafa synjun á umsókn sinni geta bæði leitað endurskoðunar innan stjórnsýslunnar og fyrir dómstólum. Þá geta umsækjendur lagt fram nýja umsókn ef fyrri umsókn er synjað. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir geta skilyrði nýrrar umsóknar verið uppfyllt. Spánn er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni má jafnframt ráða að samkvæmt spænskum lögum er þeim tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd almennt til Spánar brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Kærunefnd hefur sérstaklega skoðað gögn um málsmeðferð spænskra stjórnvalda í málum sem varða umsóknir um alþjóðlega vernd og telur þau ekki gefa tilefni til þess að ætla að brotið verði gegn 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga með endursendingu kæranda þangað. Af gögnunum verður einnig ráðið að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Spáni bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist tiltekna aðila í heimaríki sínu og þeir hafi tengsl við [...] glæpamenn sem dveljist á Spáni. Þau gögn sem kærunefndin hefur kynnt sér benda til þess að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda á Spáni óttist hann tilgreinda aðila eða að á honum verði brotið.

Kærandi, sem er [...] karlmaður, kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 14. desember 2016 vera [...]. Kærandi hafi hins vegar þjáðst af [...] áður en hann kom til landsins en [...]. Ekkert í gögnum málsins bendir því til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það er mat kærunefndar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 14. desember 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 22. október 2016.

Í máli þessu hafa spænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Spánar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir, varaformaður

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum