Hoppa yfir valmynd
14. mars 2012 Innviðaráðuneytið

Ný handbók um fjármál sveitarfélaga

Ný sveitarstjórnarlög tóku gildi um síðustu áramót, nr. 138 2011. Þau gera ráð fyrir töluverðum breytingum varðandi fjármál og reikningsskil sveitarfélaga. Í gildi hafa verið ýmsar reglur og gilda áfram en sumar munu taka breytingum og settar verða nýjar.

Til þess að halda utan um þessi mál er hér með opnuð  handbók um reikningsskil og fjármál sveitarfélaga og hefur hlotið vinnuheitið „SKÓRINN“. Bókinni er ætlað jafnframt að halda utan um ýmsar aðrar upplýsingar, svo sem álit reikningsskila- og upplýsinganefndar og fleira.

Þegar eru ýmsar upplýsingar varðandi reikningsskil og fjármál á heimasíðu innanríkisráðuneytisins undir sveitarstjórnarmál og verða þau flutt yfir í ofangreinda handbók eftir því sem fram vindur.

Það er von okkar að „SKÓRINN“ verði lifandi plagg og aðilar sem vilja hafa áhrif á efni hans og framsetningu eru hvattir til og beðnir um að koma ábendingum sínum á framfæri í netfangið [email protected].

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum