Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 21/2016 Úrskurður 1. apríl 2016

Mál nr. 21/2016                     Eiginnafn: List

 


 

Hinn 1. apríl 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2016 en erindið barst nefndinni 18. febrúar:

Ýmis dæmi eru um að óhlutstæð samnöfn eins og list séu notuð sem eiginnöfn, t.d. Von, Blíða, Þrá, Ást, Gæfa og Líf.

Eiginnafnið List (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Listar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið List (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum