Hoppa yfir valmynd
4. júní 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 491/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Endurupptekið mál nr. 491/2020

Föstudaginn 4. júní 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. október 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2020, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun með hléum á tímabilinu september 2016 til ágúst 2020. Í september 2020 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði á því tímabili ekki verið með gilt dvalarleyfi á Íslandi. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2020, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans væru stöðvaðar þar sem hann hefði ekki heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þá var kæranda tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 3.272.019 kr., að meðtöldu 15% álagi, fyrir tímabilið september 2016 til maí 2017, júlí 2017 til febrúar 2018 og júlí til ágúst 2020.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 6. október 2020. Úrskurðarnefndin úrskurðaði í málinu þann 28. janúar 2021 þar sem hin kærða ákvörðun var staðfest. Í kjölfarið kvartaði kærandi til umboðsmanns Alþingis vegna niðurstöðu úrskurðarins. Með bréfi, dags. 16. apríl 2021, óskaði umboðsmaður Alþingis eftir nánari skýringum og upplýsingum frá úrskurðarnefndinni með atbeina Vinnumálastofnunar. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. maí 2021, var óskað eftir tilteknum upplýsingum frá Vinnumálastofnun með vísan til bréfs umboðsmanns. Umbeðnar upplýsingar bárust með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. maí 2021. Í ljósi þeirra upplýsinga sem þar komu fram um hjúskaparstöðu kæranda ákvað úrskurðarnefndin að endurupptaka málið. Kæranda og umboðsmanni Alþingis var greint frá þeirri ákvörðun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. maí 2021.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi telur að útskýring Vinnumálastofnunar á endurgreiðslukröfunni sé ekki nægilega skýr. Kærandi hafi verið kvæntur íslenskri konu og því hafi hann ekki þurft atvinnuleyfi. Kærandi hafi verið með mál til meðferðar hjá Útlendingastofnun sem hafi ekki haft neitt með Vinnumálastofnun að gera á þeim tíma.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að í september 2020 hafi stofnuninni borist upplýsingar um að kærandi hefði ekki heimild til dvalar eða atvinnu hér á landi. Þá hafi legið fyrir að kærandi hefði hlotið dóm þann 31. mars 2020, meðal annars fyrir að hafa framvísað fölsuðu vegabréfi hjá Þjóðskrá Íslands í þeim tilgangi að fá ríkisfangi sínu breytt úr B í C. Kærandi hafi þannig verið ranglega skráður sem C ríkisborgari í opinberum skrám frá árinu 2016 til um mitt ár 2020 þegar dómur hafi fallið í máli hans. Á grundvelli hins ranga ríkisfangs hafi kæranda verið greiddar atvinnuleysisbætur frá 1. september 2016. Áður hafi kærandi fengið útgefið dvalarleyfi sem maki íslensks ríkisborgara frá 10. apríl 2015 til 11. mars 2016.

Mál kæranda snúi að því hvort hann hafi uppfyllt skilyrði d-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar um að hafa heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segi meðal annars um 13. gr. laganna:

„Áfram verður gert skilyrði um ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi. Þar er um að ræða íslenska ríkisborgara og þá sem hafa leyfi til að starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana eða hafa verið undanþegnir kröfu um sérstök leyfi til að starfa hér samkvæmt íslenskum lögum.“

Samkvæmt framangreindu séu það íslenskir ríkisborgarar og útlendingar sem hafi heimild til að ráða sig til vinnu án takmarkana hérlendis sem geti átt rétt til atvinnuleysisbóta á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar. Þeir sem séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi geti einnig talist tryggðir samkvæmt lögunum. Það fari því eftir þeim lögum og reglum sem gildi hverju sinni um atvinnuréttindi útlendinga hvort útlendingur teljist hafa heimild til að ráða sig án takmarkana hér á landi í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í lögum nr. 97/2002 og reglugerð nr. 339/2005 um atvinnuréttindi útlendinga sé fjallað um atvinnuréttindi útlendinga. Í 22. gr. laga nr. 97/2002 séu taldir upp þeir aðilar sem séu undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi. Þeir séu ríkisborgarar í aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, útlendingar sem hafa verið íslenskir ríkisborgarar frá fæðingu en hafa misst ríkisborgararétt sinn, erlendir makar íslenskra ríkisborgara og börn þeirra, útlendingar í einkaþjónustu sendimanna erlendra ríkja, útlendingar sem hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða hafa fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi. Á þeim tíma sem kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta hafi hann hvorki verið undanþeginn kröfu um atvinnuleyfi samkvæmt 22. gr. laganna né fengið útgefið óbundið atvinnuleyfi á grundvelli 17. gr. laganna. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysibætur hjá Vinnumálastofnun þann 1. september 2016 hafi hann með ólögmætum hætti fengið skráningu sem C ríkisborgari í Þjóðskrá Íslands. Á grundvelli þeirrar skráningar hafi stofnunin samþykkt umsóknir hans um atvinnuleysisbætur frá 1. september 2016, 26. júlí 2017 og 15. júlí 2020, enda hafi stofnunin talið hann uppfylla skilyrði a-liðar 22. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga og þar með d-liðar 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi því ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga þann tíma sem hann hafi þegið greiðslur.

Þar sem kærandi hafi ranglega fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að eiga rétt til þeirra hafi Vinnumálastofnun tekið þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum sem hann hafi fengið á tímabilinu 1. september 2016 til maí 2017, júlí 2017 til febrúar 2018 og júlí til ágúst 2020. Sú ákvörðun grundvallist á 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í málinu liggi fyrir að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda megi rekja til þess ólögmæta athæfis hans að knýja fram ranga skráningu á ríkisfangi sínu gagnvart annarri ríkisstofnun. Það sé mat Vinnumálastofnunar að stofnuninni sé skylt að endurheimta þær ofgreiddu bætur með 15% álagi með vísan til orðalags 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

Með vísan til alls ofangreinds sé það afstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að honum beri að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð kr. 3.272.019 kr.

Í bréfi Vinnumálastofnunar frá 20. maí 2021 kemur meðal annars fram að stofnunin hafi eftir fyrirspurn umboðsmanns Alþingis aflað upplýsinga hjá Þjóðskrá varðandi hjúskaparstöðu kæranda. Kærandi hafi gengið í hjónaband þann 20. nóvember 2014. Þann 12. mars 2018 hafi hann fengið skilnað að borði og sæng og þann 27. júlí 2020 hafi hann fengið lögskilnað. Vinnumálastofnun hafi ekki haft neinar forsendur eða tilefni til að óska eftir upplýsingum um hjúskaparstöðu kæranda á þeim tíma er hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur, enda hafi stofnunin talið að hann uppfyllti skilyrði 22. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sem kærandi hafi útvegað sér á forsendum falsaðra skilríkja. Á grundvelli hins ranga ríkisfangs hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá 1. september 2016. Í málinu hafi legið fyrir að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda megi rekja til þess ólögmæta athæfis hans að knýja fram ranga skráningu á ríkisfangi sínu gagnvart annarri ríkisstofnun. Stofnunin hafi ekki talið þörf á frekari skýringum frá kæranda, enda hafi staðreyndir og forsendur málsins legið fyrir á þeim tíma er umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur hafi verið synjað og ofgreiddar atvinnuleysisbætur innheimtar með 15% álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til handa kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið september 2016 til maí 2017, júlí 2017 til febrúar 2018 og júlí til ágúst 2020 á þeirri forsendu að hann hafi ekki haft heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að hafa heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana, sbr. d-lið 1. mgr. 13. gr.

Í lögum nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga er kveðið á um heimild útlendinga til atvinnu hér á landi. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 22. gr. laganna, eins og ákvæðið var orðað til 1. janúar 2017, eru erlendir makar íslenskra ríkisborgara og börn þeirra að átján ára aldri sem eru í forsjá og á framfæri þeirra undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi. Samkvæmt gögnum málsins gekk kærandi í hjónaband 20. nóvember 2014 og fékk skilnað að borði og sæng 12. mars 2018. Kærandi var því maki íslensks ríkisborgara hluta af tímabilinu sem endurgreiðslukrafan lýtur að og þar með undanþeginn kröfu um atvinnuleyfi.

Að því virtu er hin kærða ákvörðun felld úr gildi og máli kæranda vísað til nýrrar meðferðar Vinnumálastofnunar.

 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2020, í máli A um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum