Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Stóra myndin: COVID og heimsbyggðin

Fræðsluþátturinn „Stóra myndin: COVID og heimsbyggðin“ verður sýndur á RÚV í kvöld þar sem Guðrún Sóley Gestsdóttir og Logi Pedro Stefánsson skoða áhrif COVID-19 víða um heim. Þau njóta aðstoðar sérfræðinga í þróunarsamvinnu sem þekkja stöðuna á viðkæmum svæðum af eigin raun. Þátturinn er hluti af sameiginlegu fræðsluátaki íslenskra félagasamtaka í mannúðarstarfi og alþjóðlegri þróunarsamvinnu sem nefnist „Þróunarsamvinna ber ávöxt.“

„Beinna og óbeinna áhrifa kórónuveirunnar mun halda áfram að gæta á heimsvísu næstu árin, ekki síst í þróunarríkjum. Félagslegar og efnahagslegar afleiðingar eru miklar, fjöldi starfa hefur tapast og viðkvæmustu hóparnir verða verst úti. Víða hafa börn ekki getað sótt skóla nema að takmörkuðu leyti í heilt ár og mörg þeirra verða því af einu heitu máltíð dagsins,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í grein í Fréttablaðinu í dag í tilefni af átakinu.

„Aðgangur að vatni, næring, menntun og ofbeldi. Allt eru þetta hlekkir í keðjuverkun COVID-19 um allan heim,“ segir Áslaug Ármannsdóttir verkefnastjóri átaksins. „Talið er að allt að 500 milljónir manna eigi á hættu að lenda í sárafátækt vegna faraldursins en í fræðslumyndinni er sjónum beint að félagslegum og efnahagslegum afleiðingum COVID-19 á efnaminni ríki.“

Öll helstu íslensku félagasamtök í mannúðarstarfi og alþjóðlegri þróunarsamvinnu standa að fræðsluátakinu „Þróunarsamvinna ber ávöxt“, í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Fræðsluþátturinn er á dagskrá RÚV klukkan 20:00 í kvöld.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum