Hoppa yfir valmynd
17. desember 2010 Utanríkisráðuneytið

Rýnifundi um fjármálaþjónustu lokið

Rýnifundi um 9. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, fjármálaþjónustu, lauk í Brussel á miðvikudag. Á fundinum, sem stóð í tvo daga, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í þessum samningskafla. Fyrir íslenska hópnum fór Harald Aspelund, formaður samningahóps um EES II málefni en 9. kafli er hluti af EES-samningnum og hefur Ísland innleitt alla viðeigandi löggjöf ESB á sviði fjármálaþjónustu, verðbréfamarkaða og fjárfestingarþjónustu.

Greinargerð samningahópsins sem fjallar um fjármálaþjónustu (EES II) hefur verið birt á heimasíðunni esb.utn.is en í henni er að finna nánari útlistun á viðfangsefni kaflans. Hægt er að opna greinargerðina með því að smella hér.

* * *

Löggjöf Evrópusambandsins skiptist í alls 33 kafla, auk kafla um stofnanir og önnur mál. Áður en eiginlegar samningaviðræður hefjast um einstaka kafla fer fram rýnivinna þar sem löggjöf Íslands og ESB er borin saman til að greina hvar íslensk löggjöf er frábrugðin og hvað semja þarf um. Tveir rýnifundir munu fara fram um flesta samningskafla. Á þeim fyrri kynnir framkvæmdastjórnin löggjöf ESB og á þeim síðari kynnir Ísland sína löggjöf. Í þeim köflum sem falla undir EES-samninginn og þar sem regluverkið hefur að öllu leyti verið tekið upp af Íslands hálfu, verður aðeins um einn fund að ræða.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum