Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 469/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 469/2021

Fimmtudaginn 16. desember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. september 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 26. mars 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 100%. Tekið var fram að þar sem kærandi ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn um atvinnuleysisbætur yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 8. september 2021. Með bréfi, dags. 13. september 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 4. október 2021 og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. október 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.   

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann sé búinn að bíða í fimm mánuði eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun sem hafi sett hann á fimm mánaða refsingu. Vinnumálastofnun segi kæranda ekki hafa mætt á fund og að engin skýring hafi borist frá honum. Það sé rangt en á þeim tíma árið 2017 hafi kærandi átt heima í heilsárshúsi skammt frá B og hafi ekki getað mætt á fundinn á B þar sem hann hafi ekki haft bíl til umráða og hafi verið fastur heima með börnin sín. Kærandi hafi annaðhvort látið vita með tölvupósti eða símtali. Samkvæmt Vinnumálastofnun hafi kærandi ekki gefið neina útskýringu og sé því refsing stofnunarinnar sú að láta kæranda, sem eigi tvö börn og búinn að missa allt, vera tekjulausan í fimm mánuði með þeim afleiðingum að búið sé að eyðileggja framtíð hans. Kærandi muni aldrei komast upp aftur eftir þetta.

Að mati kæranda hafi Vinnumálastofnun litið fram hjá skýringum hans og öllu sem hann hafi sent þeim. Kærandi viti ekki hvort það sé einhver tilgangur í því að kæra en Vinnumálastofnun eigi að taka tillit þar sem stofnunin hafi gert mistök.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 26. mars 2021. Umsókn hans hafi verið samþykkt þann 26. ágúst 2021. Þar sem kærandi hafi átt ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn sinni um atvinnuleysisbætur hafi kærandi ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrr en að þeim biðtíma liðnum. Kærandi hafi sætt biðtíma á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 þann 9. janúar 2018 og þar áður á grundvelli 58. gr. laganna þann 3. október 2017. Kærandi hafi ekki áunnið sér inn rétt til nýs bótatímabils og því hafi verið fimm mánuðir eftir af óteknum biðtíma kæranda þegar hann hafi sótt að nýju um greiðslur atvinnuleysisbóta í mars 2021.

Málið varði ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Ákvörðun um biðtíma á grundvelli 59., 58. og 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé frá 3. október 2017 og 9. janúar 2018.  Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana sé því liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.

Til umfjöllunar sé því hvort kærandi hafi átt að sæta eftirstöðvum biðtíma þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur í mars 2021.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki tekið út biðtíma vegna ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 26. mars 2021, vegna fyrra umsóknartímabils þegar hann hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta að nýju. Viðurlagaákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 58. og 59. gr. laga nr. 54/2006 og þar sem um hafi verið að ræða aðra viðurlagaákvörðun vegna kæranda á sama bótatímabili hafi komið til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 og hafi honum því verið gert að sæta samtals fimm mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Í 5. mgr. 61. gr. laganna sé fjallað um hvenær biðtími samkvæmt ákvæðinu geti fallið niður. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæði þessu falla niður þegar nýtt tímabil hefst skv. 29. gr. hefst, sbr. 30. eða 31. gr. laganna.“

Í 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um hvenær nýtt tímabil geti hafist áður en fyrra tímabili ljúki að fullu. Ákvæðið hljóði svo:

„Nýtt tímabil skv. 29. gr. hefst þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Að öðru leyti gilda ákvæði III. og IV. kafla um skilyrði atvinnuleysistryggingar hins tryggða eftir því sem við getur átt.“

Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi hann ekki unnið samfellt í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur og því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils.

Þar sem kærandi hafi ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils þurfi hann að sæta biðtíma áður en greiðslur atvinnuleysisbóta geti hafist. Vinnumálastofnun bendi á niðurstöðu úrskurðarnefndar atvinnuleysis- og vinnumarkaðsúrræða í máli nr. 56/2014 og úrskurðarnefndar velferðarmála í málum nr. 371/2017 og 53/2019 er varði samskonar álitaefni.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda og að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 3. október 2017 var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysisbætur sem hljóðar svo:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar þann 9. janúar 2018 var bótaréttur kæranda felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Þar segir að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir, enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr. Í 5. mgr. 61. gr. laganna kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefst, sbr. 30. og 31. gr. laganna.  

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kærufestur vegna framangreindra ákvarðana er því liðinn. Til skoðunar er einungis ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til handa kæranda á bið þar sem hann hafði ekki tekið út framangreinda biðtíma þegar hann sótti um atvinnuleysisbætur í mars 2021.  

Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standa yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.   

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 26. mars 2021, starfað samfellt í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 26. mars 2021. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda á bið staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum