Hoppa yfir valmynd
4. júní 2018 Innviðaráðuneytið

Styrkveitingar vegna flutningsjöfnunar á árinu 2017

Lögð hefur verið fram á Alþingi skýrsla samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um framkvæmd svæðisbundinnar flutningsjöfnunar á árinu 2017. Byggðastofnun annast veitingar flutningsjöfnunarstyrkja og á árinu 2017 námu þeir samtals 136,2 milljónum króna.

Skýrsla ráðherra er lögð fram  í samræmi við 9. gr. laga um svæðisbundna flutningsjöfnun nr. 160/2011. Eins og fram kemur í 1. gr. laganna er tilgangur svæðisbundinnar flutningsjöfnunar að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Það er gert með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði. 

Landinu er skipt upp í svæði 1, svæði 2 og höfuðborgarsvæðið. Aðeins fyrirtæki á svæðum 1 og 2 geta sótt um styrk, sjá meðfylgjandi mynd. Þeir sem eru á svæði 1 geta sótt um 10% endurgreiðslu á flutningskostnaði af flutningi umfram 245 km. Á svæði 2 er hægt að sækja um 10% endurgreiðslu á flutningskostnaði af flutningi sem er 245-390 km en 20% ef farið er lengra en 390 km. Nánari skilyrði um styrkhæfan flutning má finna í reglugerð 67/2012 um svæðisbundna flutningsjöfnun með síðari breytingum.

Ákveðnir þættir hafa orðið til þess að styrkir til jöfnunar flutningskostnaðar hjá framleiðslufyrirtækjum hafa verið lægri en gert var ráð fyrir í upphafi. Má þar aðallega nefna aukna strandflutninga sem gera það að verkum að mörg fyrirtæki sem geta nýtt sér slíka flutninga eru styttra en 245 km frá næstu útflutningshöfn. Er þá grunnforsenda fyrir styrkveitingu ekki lengur til staðar. Því er ákveðið svigrúm til að auka styrki til þeirra sem eftir sitja og geta ekki nýtt sér þennan möguleika.

Byggðastofnun hefur skoðað nokkrar mögulegar breytingar á kerfinu sem leitt gætu til betri nýtingar þessarar fjárveitingar: hækkun á styrkhlutfalli, stytting lágmarksvegalengda og fjölgun styrkhæfra atvinnugreina. Í skýrslunni er nánari umfjöllun um hvern þessara kosta. Ráðherra hefur þessa kosti til skoðunar en í undirbúningi er frumvarp til breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum