Hoppa yfir valmynd
27. maí 2013 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2013

Í ár bárust hátt í þrjú þúsund hugmyndir frá 44 grunnskólum

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Helgi Árnason skólastjóri Rimaskóla
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Helgi Árnason skólastjóri Rimaskóla

Afhending verðlauna fóru fram í lokahófi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda sunnudaginn 26. maí og var keppnin nú haldin í 21. sinn. Athöfnin fór fram í Sólinni, í Háskólanum í Reykjavík, sem er einn af bakhjörlum keppninnar. Átján þátttakendur fengu verðlaun fyrir hugmyndir sínar af þeim 53 þátttakendum sem tóku þátt í úrslitum. Í ár bárust 2906 hugmyndir frá 44 grunnskólum, víða um land, sem kenna á miðstigi. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, verndari keppninnar, afhenti verðlaunin og flutti hátíðarræðu. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra flutti hvatningarræðu, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og farandbikar til grunnskóla. Þá kynntu þátttakendur sjálfir hugmyndir sínar fyrir gestum.

Farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri skóla

Farandbikarinn í flokki stærri skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ. Var þetta fimmta árið í röð sem Hofsstaðaskóli hlýtur bikarinn. Farandbikarinn í flokki minni skóla fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni hlaut Brúarásskóli á Fljótdalshéraði annað árið í röð.

Guðrúnarbikarinn

Tristan Snær Björnsson og Reynir Aron Magnússon úr Laugarnesskóla hlutu Guðrúnarbikarinn, sem Anna Hulda Ólafsdóttir afhenti til minningar um móður sína Guðrúnu Þórsdóttir. Þeir hlutu verðlaunin fyrir hugmyndina  „Video School“ sem kynnir upphaf grunnskóla fyrir leikskólakrökkum.

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar

Tæknibikar Pauls Jóhannssonar var afhentur í fyrsta sinn. Paul Jóhannsson er einn af frumkvöðlum Nýsköpunarkeppninnar og hleypti henni af stokkunum fyrir 21 ári. Hann varði lungan af ævi sinni í eflingu nýsköpunarmenntar á Íslandi. Tæknibikar Pauls Jóhannssonar var veittur til Atla Gauta Ákasonar, en hugmynd hans „Hangbekkur“ snýst um tæknileg lausn á vandamálum siglingamanna sem vilja æfa jafnvægi á skútu án þess að vera staddur á opnu hafi.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda er haldin á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. NKG verkefnalausnir sjá um framkvæmd og rekstur. Aðalbakhjarl er Marel og aðrir bakhjarlar eru Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Landsbankinn og Samtök iðnaðarins.


Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Helgi Árnason skólastjóri RimaskólaIllugi Gunnarsson ásamt verðlaunahöfum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum