Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 407/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 407/2019

Miðvikudaginn 22. janúar 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 26. september 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. september 2019 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá X 2019.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 16. september 2019, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með barni þeirra frá X 2019. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 17. september 2019, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá X 2019. Með bréfi, dags. 25. september 2019, andmælti kærandi ákvörðun stofnunarinnar og var þeim andmælum svarað með bréfi, dags. 9. október 2019.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. september 2019. Með bréfi, dags. 8. október 2019, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 31. október 2019, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram sú krafa kæranda að ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur til barnsmóður hans verði dregin til baka og ógild á eftirfarandi forsendum.

Í fyrsta lagi liggi fyrir yfirlýsing kæranda og barnsmóður hans sem gerð hafi verið samhliða samningi þeirra um forsjá þann X 2013. Þar komi skýrt fram samkomulag þeirra um að meðlag verði ekki greitt og að þau muni ekki leita eftir því að innheimta meðlag vegna barna þeirra hjá Tryggingastofnun.

Í öðru lagi hafi synir kærenda búið hjá þeim báðum, þ.e. B hjá kæranda og C hjá barnsmóður hans. Að auki hafi þau haft sameiginlega forsjá þeirra frá skilnaði. Á þeim sex árum sem liðin séu frá skilnaði hafi engar meðlagsgreiðslur átt sér stað og aldrei hafi verið farið fram á það fyrr en nú af hálfu barnsmóður kæranda.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með syni þeirra frá X 2019.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 17. september 2019, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá X 2019 með syni þeirra. Stofnuninni hafði borist umsókn barnsmóður kæranda þann X 2019 um meðlag frá X 2019, ásamt staðfestingu á samkomulagi um meðlag frá Sýslumanninum í D, dags. X 2014, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða meðlag með syni sínum frá X 2014 til 18 ára aldurs. Kærandi hafi andmælt þessari ákvörðun og hafi óskað eftir niðurfellingu meðlagsins og hafi honum verið svarað með bréfi, dags. 9. október 2019.

Kveðið sé á um það í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. staðfesting á samkomulagi um meðlag, dags. 13. janúar 2014, sem kveði á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag.

Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun, sé þess farið á leit við stofnunina, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá 1. september 2019 eins og hún hafi óskað eftir og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi taki fram í kæru sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. september 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá X 2019.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur er hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við.

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur allt að tólf mánuði aftur í tímann berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar.

Kærandi vísar til þess að hann og barnsmóðir hans eigi tvo syni, annar þeirra sé með lögheimili hjá kæranda og hinn hjá móður sinni. Þau hafi undirritað samkomulag þann X 2013 samhliða samningi þeirra um forsjá þar sem komi skýrt fram að meðlag verði ekki greitt og að þau muni ekki leita eftir því að innheimta meðlag hjá Tryggingastofnun. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með syni þeirra frá X 2019. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli staðfestingar Sýslumannsins í D á samkomulagi, dags. X 2014. Samkvæmt samkomulaginu ber kæranda að greiða barnsmóður sinni meðlag frá X 2014 til 18 ára aldurs sonar hans.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar ber stofnuninni lögbundin skylda til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í ákvæðinu, sem er grundvöllur ákvörðunar stofnunarinnar, segir nánar tiltekið að hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni geti snúið sér til stofnunarinnar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags samkvæmt úrskurðinum og sama gildir um staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur. Eins og áður hefur komið fram liggur fyrir í máli þessu meðlagssamningur, er hlotið hefur staðfestingu sýslumanns, sem kveður á um meðlagsskyldu kæranda með syni sínum til 18 ára aldurs. Í ljósi þess bar Tryggingastofnun að fallast á umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur, enda hafði stofnunin enga heimild til að synja umsókninni með vísan til samkomulags foreldra um að innheimta ekki meðlag.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá X 2019.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 17. september 2019 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá X, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum