Hoppa yfir valmynd
13. mars 2020 Utanríkisráðuneytið

Falsfréttum um kórónaveiruna dreift í nafni alþjóðastofnana

Ljósmynd: UNICEF/Frank Dejongh - mynd

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) fordæmir dreifingu á falsfréttum og röngum upplýsingum um viðbrögð og varnir við Covid-19 veirunni. Þess eru dæmi að slíkum rangupplýsingum hafi verið dreift í nafni UNICEF og annarra alþjóðastofnana, segir í yfirlýsingu frá stofnuninni.

„Við höfum aðeins eitt að segja við þá sem dreifa slíkum upplýsingum á tímum sem þessum: Hættið þessu! Að dreifa ónákvæmum upplýsingum og reyna að gera þær trúverðugar í nafni annarra sem njóta trausts er rangt og beinlínis hættulegt,“ segir í yfirlýsingunni.

UNICEF ítrekar að almenningur eigi ávallt að leita upplýsinga hjá traustum aðilum, stofnunum og yfirvöldum hverju sinni, en ekki skima fyrirsagnir á samfélagsmiðlum og netmiðlum sem byggi á óljósum heimildum.

Þá vekur UNICEF athygli á því að sú staðreynd að Covid-19 kórónaveiran sé nú skilgreind sem heimsfaraldur þýði ekki að hún sé nú orðin banvænni eða hættulegri en áður. Þessi skilgreining sé fremur viðurkenning á útbreiðslu veirunnar.

„UNICEF hefur unnið að undirbúningi og viðbragði við Covid-19 um allan heim, vitandi að veiran getur borist til barna og fjölskyldna í öllum löndum. Við munum halda áfram að vinna með stjórnvöldum og samstarfstarfsaðilum við að stöðva smitleiðir og halda börnum og fjölskyldum þeirra öruggum. Á sama tíma lýsum við yfir áhyggjum af óbeinum áhrifum faraldursins og þeim aðgerðum sem verið er að grípa til og áhrifum þeirra á börn. Eins og skólalokanir, álag sem þær setja á grundvallarþjónustu í heilbrigðiskerfinu og efnahagsleg áhrif á fjölskyldur.“

UNICEF telur að ótti við veiruna ali líka á fordómum og mismunun gagnvart hópum í viðkvæmri stöðu, eins og flóttafólki og hælisleitendum. Það sé algjörlega óásættanlegt. „Við munu halda áfram að vinna á vettvangi við að lágmarka óbein áhrif faraldursins á börn og spyrna við fordómum og tilraunum til að brennimerkja fólk,“ segir í yfirlýsingu UNICEF.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum