Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 58/2021 Úrskurður 1. júlí 2021

Mál nr. 58/2021                    Eiginnafn:     Ólasteina (kvk.)

 

 

Hinn 1. júlí 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2021, en erindið barst nefndinni 17. maí. Málið var fyrst tekið fyrir á fundi nefndarinnar 26. maí 2021 en afgreiðslu þess frestað.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í þessu máli reynir á skilyrði nr. tvö og þrjú hér að ofan. Eiginnafnið Ólasteina (kvk.) fer gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku. Fyrri liður þess er nafnið HHanna Óla, í aukaföllum Ólu. Ekki er hefð fyrir því að fyrri liður samsetts nafns fallbeygist, það gerir aðeins sá síðari. Nafnið Ólasteina (í eignarfalli Ólusteinu) brýtur þannig í bág við íslenskt málkerfi. Annar möguleiki væri að fyrri liður væri óbreyttur í beygingu (sbr. eignarfallsmyndina Ólasteinu). Sá möguleiki bryti einnig í bág við íslenskt málkerfi þar sem orðmyndir með sérstaka nefnifallsendingu mynda ekki fyrri lið í samsettum orðum; þar er notuð eignarfalls- eða stofnmynd orðs (sbr. brúður, með nefnifallsendinguna –ur, og samsettu orðin brúðargjöf og brúðkaup; sömuleiðis tindur og samsettu örnefnin Tindfjall, Tindafell og Tindarhlein). Þá getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls að rita tvö sjálfstæð eiginnöfn á borð við Óla og Steina sem eitt orð. Rithátturinn Ólasteina er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og uppfyllir þ.a.l. ekki tilvitnað ákvæði laga um mannanöfn.

Til samanburðar vísast til úrskurðar mannanafnanefndar frá 27. júní 2005 í máli nr. 59/2005, vegna umsóknar um nafnið Annalísa; til úrskurðar frá 25. september 2008 í máli nr. 56/2008, vegna umsóknar um nafnið Annalinda; til úrskurðar frá 4. febrúar 2010 í máli nr. 69/2009, vegna umsóknar um nafnið Liljarós; til úrskurðar frá 21. september 2011 í máli nr. 69/2011, vegna umsóknar um nafnið Hannadís; til úrskurðar frá 3. október 2014 í máli nr. 58/2014, vegna umsóknar um nafnið Sveinnóli; til úrskurðar frá 3. júní 2016 í máli nr. 48/2016, vegna umsóknar um nafnið Olgalilja; til úrskurðar frá 22. maí 2019 í máli nr. 39/2019, vegna umsóknar um nafnið Ingadóra; til úrskurðar frá 14. janúar 2020 í máli nr. 3/2020, vegna umsóknar um nafnið Hannalísa, og jafnframt til úrskurðar frá 19. maí 2021 í máli nr. 32/2020, vegna umsóknar um nafnið Sigríðurjóna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ólasteina (kvk.) er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum