Hoppa yfir valmynd
12. desember 2022 Utanríkisráðuneytið

Níu tonn af hlýju frá Íslandi til Úkraínu

Frá öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag - myndUtanríkisráðuneytið

Níu tonn af hlýju frá Íslandi voru um borð í kanadískri herflutningavél sem flaug frá Keflavíkurflugvelli áleiðis til Úkraínu í dag. Um að ræða vetrarútbúnað fyrir varnarsveitir Úkraínu og almenning sem er annars vegar afrakstur sjálfboðavinnu þúsunda Íslendinga og hins vegar kaup utanríkisráðuneytisins á margvíslegum vetrarbúnaði.

Utanríkisráðuneytið auglýsti fyrr í haust eftir vetrarútbúnaði fyrir varnarsveitir Úkraínu. Gengið hefur verið frá kaupum á skjólfatnaði og skóm frá Fjallakofanum, 66°N og Dynjanda fyrir tæpar 50 milljónir króna en raunvirði varningsins er um 140 milljónir. Þessi búnaður, auk sjúkragagna sem íslenskur aðili hefur gefið, var fluttur með kanadískri herflutningavél áleiðis til Úkraínu í dag. Í farminum eru auk þess rúmlega 3.500 pör af lopasokkum sem íslenskur almenningur hefur prjónað fyrir Úkraínu í tengslum við verkefnið Sendum hlýju og aðrar ullarflíkur sem íslenskt og úkraínskt prjónafólk hefur ýmist prjónað eða gefið á svonefndum hannyrðahittingum.

„Þungur hrammur vetrarins færist nú hægt og bítandi yfir Úkraínu og eins og við höfum séð beita rússnesku innrásaröflin honum sem vopni í yfirstandandi átökum. Sem herlaus þjóð getur Ísland eðli máls samkvæmt ekki lagt úkraínskum varnarsveitum til hergögn en við getum hins vegar sent þeim hlýjan skjólfatnað, sem er ekki síður nauðsynlegur á ísköldum vígvellinum en hefðbundin vopn,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Starfsfólk Landhelgisgæslunnar pakkaði varningnum um helgina og setti á bretti sem var síðan staflað um borð kanadísku herflutningavélina á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Auk utanríkisráðherra fylgdust fulltrúar Sendum hlýju og hannyrðahittingsins og Jeannette Menzies, sendiherra Kanada á Íslandi með því sem fram fór.  

„Það er rík ástæða til að þakka öllum þeim sem eiga þátt í að við sendum alla þessa hlýju til Úkraínu í dag. Þar vil ég nefna fyrirtækin sem við höfum átt í góðu samstarfi við, Landhelgisgæsluna sem hefur annast umsýslu og kanadíska flugherinn sem flytur varninginn á áfangastað. Og síðast en ekki síst á hannyrða- og prjónafólk á Íslandi sérstakar þakkir skildar fyrir að sýna sinn hlýhug í verki með svo áþreifanlegum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

  • Heiðrún Hauksdóttir, talskona Sendum hlýju, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Jeannette Menzies, sendiherra Kanada á Íslandi, og Birgit Birgit Raschhofer, upphafskona hannyrðahittings  - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum