Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2023 Innviðaráðuneytið

Útgjaldajöfnunarframlög og jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla enduráætluð

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðun áætlana um úthlutanir framlaga til sveitarfélaga á árinu 2023. Annars vegar framlög til útgjaldajöfnunar og hins vegar almenn jöfnunarframlög vegna reksturs grunnskóla. Að tillögu nefndarinnar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 13.000 m.kr. og áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 12.660 m.kr.

Útgjaldajöfnunarframlög

Endurskoðun á áætlaðri úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2023 hefur farið hefur fram. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi og íbúafjölda í sveitarfélögum 1. janúar 2023.
Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár 13.000 m.kr. Þar af nema framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 575 m.kr. Í desember koma til úthlutunar og greiðslu viðbótarframlög að fjárhæð allt að 175 m.kr. vegna íþyngjandi kostnaðar sveitarfélaga af skólaakstri úr dreifbýli á árinu 2023 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2023 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli. Uppgjör framlaganna fer fram í desember.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Endurskoðun á áætlaðri úthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla fyrir árið 2023 hefur farið fram. Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna ársins 2021 og áætlun um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2022. Jafnframt var áætlunin uppfærð hvað varðar fjölda íbúa á grunnskólaaldri í hverju sveitarfélagi 1. janúar 2023.

Að tillögu ráðgjafarnefndar nemur áætluð heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla í ár 12.600 m.kr. Til viðbótar eru leiðréttingar á framlögum ársins 2021 að fjárhæð 60 m.kr. Áætlaðar heildargreiðslur framlaganna nema því 12.660 m.kr. á árinu 2023. 

Starfsfólk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga uppgötvaði nýlega skekkju í útreikningi á hagkvæmnisstuðli hjá Mosfellsbæ í tengslum við almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla. Af þeim sökum þarf að leiðrétta framlög til Mosfellsbæjar fyrir árin 2015-2019. Samanlagt fékk Mosfellsbær 216 m.kr. lægri framlög á þessu tímabili sem verður leiðrétt á þessu ári. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum