Hoppa yfir valmynd
20. desember 2018 Utanríkisráðuneytið

Vanræktasta neyðin í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó

Ljósmynd: Christian Jepsen/NRC - mynd

Vanræktasta neyðin í heiminum er í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DCR). Þar geisar bæði stríð og ebólufaraldur. Fréttaveita Reuters leitar árlega álits mannúðarsamtaka á vanræktustu neyðinni og birti í morgun niðurstöðu könnunarinnar. Kongó er í efsta sæti listans annað árið í röð.

„Ég heimsótti Kongó á þessu ári og hef sjaldan orðið vitni að jafn miklum mun á þörfinni annars vegar og aðstoðinni hins vegar,“ segir Jan Egeland yfirmaður Norska flóttamannaráðsins. „Grimmdin í átökunum er átakanleg en það er líka hryllilegt að horfa upp á afskiptaleysið, bæði innan lands og á alþjóðavísu,“ bætir hann við.

Óvenju margar „gleymdar kreppur“ er að finna á lista ársins en auk Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó voru tilnefnd sjö önnur ríki, Miðafríkulýðveldið, Jemen, Afganistan, Suður-Súdan, Búrúndí, Nígería og Venesúela, auk svæðisins umhverfis Tjadvatnið í Mið-Afríku.

Þrátt fyrir óskaplega neyð í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó rataði ástandið þar sjaldan í heimsfréttirnar, jafnvel ekki síðustu dagana í aðdaganda tímamótakosninga í landinu sem óttast er að leiði af sér aukin átök.

Þrettán milljónir af rúmum áttatíu milljónum íbúa í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó eru hjálparþurfi. Sex af 21 mannúðarsamtökum sem tóku þátt í könnun Reuters töldu ástandið verst í Kongó, meðal annars Matvælaáætlun SÞ (WFP), Norska flóttamannaráðið, Oxam og Acton Aid. Fimm samtök töldu ástandið í Miðafríkuríkinu verst, meðal annars OCHA, UNICEF, MercyCorps og Plan International.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum