Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Réttindi íslenskra ríkisborgara tryggð eftir Brexit

Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Brussel, áritar samninginn fyrir Íslands hönd.  - myndEFTA

Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur. Hafa drög samningsins nú verið birt.

Með þessum samningi EFTA-ríkjanna innan EES og Bretlands eru íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru í Bretlandi og Bretum búsettum á Íslandi fyrir útgöngudag tryggð réttindi til áframhaldandi búsetu gangi Bretland úr ESB án samnings. 

Undir lok nýliðins árs lauk samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES við Bretland vegna útgönguskilmála Bretlands úr ESB og Evrópska efnahagssvæðinu. Sá  samningur verður eingöngu undirritaður ef útgöngusamningurinn milli Bretlands og ESB verður samþykktur og tekur gildi.

Nú hafa því verið tryggð áframhaldandi búseturéttindi óháð niðurstöðu viðræðna milli Bretlands og ESB. Í báðum sviðsmyndum munu nýjar reglur um skráningu taka gildi um íslenska ríkisborgara í Bretlandi.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fagnaði því að samkomulag væri í höfn; „Íslensk stjórnvöld hafa undirbúið sig fyrir mismunandi sviðsmyndir meðal annars þann möguleika að Bretland gangi úr ESB án samnings. Þetta er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem tryggir réttindi íslenskra og breskra ríkisborgara óháð því hvort viðræðum Bretlands og ESB ljúki með samningi þeirra á milli.“

Bresk stjórnvöld hafa birt tilkynningu um málið, auk nánari skýringa á samningsdrögunum.

Nánari upplýsingar um réttindi íslenskra ríkisborgara til búsetu í Bretlandi og skráningu hjá Home Office má finna á síðu um borgararéttindi vegna Brexit.

 
  • Fulltrúar Bretlands og EFTA-ríkjanna innan EES búa sig undir að árita samninginn - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum