Hoppa yfir valmynd
1. september 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 328/2022 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. september 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 328/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22070035

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 18. júlí 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kólumbíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júní 2022, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að vera veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 27. desember 2021. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 14. febrúar 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 27. júní 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 18. júlí 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 3. ágúst 2022 ásamt fylgigögnum.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi og vegna almenns ástands í landinu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda til kærunefndar kemur fram að kærandi sé pan- og samkynhneigður og óttist ofsóknir vegna þess í heimaríki sínu. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi verið beittur kynferðisofbeldi þegar hann hafi verið sjö ára og orðið fyrir einelti og andlegu ofbeldi í æsku. Kærandi kveður að í heimabæ hans, og í Kólumbíu almennt, ríki karllæg menning og hann hafi orðið fyrir miklu líkamlegu og andlegu ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar. Faðir hans hafi beitt hann miklu ofbeldi eftir að kærandi greindi honum frá kynhneigð sinni og þeir séu ekki í sambandi í dag. Kærandi hafi útskrifast sem lögfræðingur og þegar hann hafi hafið störf hafi alvarlegir hlutir átt sér stað sem á endanum hafi orðið til þess að hann sótti um alþjóðlega vernd. Hann hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu vinnufélaga sinna og annars fagfólks. Þá hafi hann áttað sig á því að ofbeldi og mismunun vegna kynhneigðar hans væri viðvarandi vandamál og hafi hann að lokum ekki séð sér annan kost en að flýja land af ótta við að verða tekinn af lífi. Kærandi hafi greint sérstaklega frá þremur atvikum er hafi haft mikil áhrif á líf hans. Í fyrsta lagi hafi kærasti hans verið stunginn vegna kynhneigðar sinnar árið 2019. Í öðru lagi hafi kærandi sjálfur verið sleginn í höfuðið með glerflösku í september 2021 vegna kynhneigðar. Í þriðja lagi hafi hann í kjölfar þessa byrjað að fá ógnandi skilaboð og símtöl. Kærandi kveðst ekki hafa leitað til lögreglu þar sem yfirvöld í Kólumbíu geti ekki veitt honum vernd. Kærandi telji að ef hann myndi leita til lögreglu vegna ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir myndi hann verða fyrir frekari ofbeldi fremur en að fá vernd frá yfirvöldum. Kærandi hafi þjáðst af mikilli andlegri vanlíðan vegna þess ofbeldis og mótlætis sem hann hafi mætt vegna kynhneigðar sinnar.

Kærandi gerir í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Einkum hvað varðar mat stofnunarinnar á þeirri hættu sem að honum steðji vegna kynhneigðar og möguleika hans á vernd yfirvalda. Kærandi kveðst hafa beitt sér fyrir réttindum hinsegin fólks en hann hafi tekið þátt í verkefni á vegum embættis borgarstjóra Bógóta um að uppfræða LGBTI+ fólk um réttindi þeirra. Kærandi hafi ekki tekið þetta fram í viðtali hjá Útlendingastofnun þar sem að hann hafi misskilið spurninguna. Kærandi telji að þátttaka hans í verkefninu geri hann berskjaldaðri fyrir ofsóknum. Kærandi telur að þrátt fyrir þær umbætur sem hafi átt sér stað í málefnum LGBTI+ fólks sé morðtíðni há og refsileysi vegna slíkra brota á háu stigi. Kærandi hafi upplifað ofbeldi og ítrekað verið hótað vegna kynhneigðar sinnar. Útlendingastofnun hafi ekki dregið í efa að kærandi hafi sætt ofbeldi og ætti á hættu að sæta slíku ofbeldi áfram vegna kynhneigðar sinnar. Að mati kæranda sé því enginn vafi á því aðstæður hans nái því marki að teljast ofsóknir en hann telur vernd yfirvalda útilokaða.

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknar vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi. Þrátt fyrir tilraunir yfirvalda í Kólumbíu til að auka réttindi og vernd LGBTI+ fólks eigi sér stað mismunun og alvarleg ofbeldisbrot í þeirra garð. Í skýrslum innlendra og alþjóðlegra mannréttindasamtaka komi fram að þrátt fyrir ágæta lagalega vernd skorti verulega upp á framkvæmd laganna. Þá hafi umboðsmaður mannréttinda í Kólumbíu lýst áhyggjum af hárri tíðni ofbeldis gegn LGBTI+ fólki og hafi það verið mat hans eftir úttekt ársins 2020 að ofbeldi og fordómar gegn LGBTI+ einstaklingum hafi aukist. Kólumbía sé talið eitt af hættulegustu löndum Suður-Ameríku fyrir LGBTI+ fólk. Kærandi hafi líst alvarlegum fordómum, áreiti, líflátshótunum og ofbeldi vegna kynhneigðar í Kólumbíu og fái framburður hans stuðning í heimildum undanfarinna ára um stöðu hinsegin fólks í landinu. Þá beri að líta til þess að samkvæmt heimildum geti sú vernd sem ríkið veiti samkynhneigðum  hvorki talist aðgengileg né áhrifarík enda kveði heimildir á um refsileysi vegna ofbeldis í gerð LGBT+ fólks og um brot lögreglu á réttindum þeirra.

Verði kærunefnd ekki við aðalkröfu kæranda er þess krafist til vara að honum verði veitt viðbótarvernd þar sem hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu í Kólumbíu vegna kynhneigðar sinnar. Í greinargerð kemur fram að almennt ófriðarástand hafi ríkt í Kólumbíu síðustu áratugi og ferðafrelsi verið skert. Yfir níu milljónir séu á vergangi. Stofnunum ríkisins skorti getu til að tryggja réttindi, nauðsynlega þjónustu og mannúðaraðstoð til fólks á vergangi. Talsverðar hindranir séu á því að leita verndar með flutningi innanlands í Kólumbíu. Þá verði að líta til þess að kærandi sé aðeins í sambandi við móður sína í heimaríki og sé krafa um innri flutning því hvorki raunhæf né sanngjörn gagnvart honum.

Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi átt mjög erfitt með að finna vinnu vegna kynhneigðar sinnar og mætt fordómum vegna kvenlegra eiginleika sinna og útlits. Sem samkynhneigður einstaklingur standi hann frammi fyrir hættu á ofbeldi og margskonar mismunun verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu. Hann eigi erfiðara með að fá atvinnu, finna húsnæði og sækja sér heilbrigðisaðstoð en ella. Þá beri heilbrigðisgögn með sér að kærandi þarfnist aðstoðar fagaðila til að vinna úr þeim áföllum sem hann hafi orðið fyrir, auk þess sem hann myndi búa við erfiðar félagslegar aðstæður yrði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi er kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2021/2022 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post-FARC-EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 19. apríl 2022);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Colombia‘s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
  • Colombia: Requirements and procedures to submit a complaint to the police, the Fiscalía General de la Nación, and the Defensoría del Pueblo, including types of complaints; standardization and appearance of documents; requirements and procedures to obtain a copy of the complaint and investigative report for each organization, both from within the country and from abroad (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. maí 2017);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 22. júní 2022);

  • Freedom in the World 2020 – Colombia (Freedom House, 4. mars 2020);
  • Freedom in the World 2021 – Colombia (Freedom House, 2021);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
  • Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Gender, Sexuality and GenderBases Violence (Human Rights Watvh, 2021);
  • Los Focos Del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communites (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • More than 60 LGBT, intersex people killed in Colombia in the first eight months of 2020 (Reuters, 11. mars. 2020);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • Systemic crimes committed Against LGBT people in the Colonian Armed Conflict (Colomnia Diversa, júlí 2020);
  • The Colombia Collaborative Project: Stress, health and wellbeing of LGBT people in Colombia (UCLA School of Law, apríl 2020);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 7. júní 2022);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
  • Freedom in the World 2022 - Colombia (Freedom House, 2022);
  • World Report 2020 – Events of 2019 (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast 79% íbúa kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn LGBTI+ einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni komi fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi innleitt lög um að glæpavæða opinbera spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Í skýrslu samtakanna Freedom House frá 2022 kemur fram að mannréttindabrot af hendi lögreglunnar í mótmælum árið 2021 hafi leitt til kerfisbreytinga og í desember 2021 hafi þingið samþykkt umbótapakka (e. reform package) til að styrkja agaviðurlög vegna brota lögreglumanna í starfi. Í skýrslunni kemur fram að lögregluyfirvöld og ríkissaksóknari hafi hafið rannsókn á öllum ásökunum um ofbeldi lögreglu og óhóflegri valdbeitingu. Hinn 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro hafi verið fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti.

Í framangreindri skýrslu samtakanna Freedom House kemur t.a.m. fram að spillingar gæti víða í kólumbísku stjórnkerfi. Á síðustu árum hafi komið upp á yfirborðið hneykslismál tengd ýmsum alríkisstofnunum sem hafi verið rannsökuð og í einhverjum tilvikum hafi verið sakfellt fyrir brot háttsettra embættismanna í starfi. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir. Í framangreindri skýrslu Freedom House kemur fram að friðarsamkomulagið sem undirritað var árið 2016 milli ríkisstjórnarinnar og FARC skæruliðahópsins hafi haldist óbreytt á árinu. En tafir á framkvæmd samkomulagsins og afvopnun fyrrverandi uppreisnarmanna hafi vakið áhyggjur eftirlitsaðila. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til þeirrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð aðgerðarsinna verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar fátíðar.

Af framangreindum heimildum má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionaty Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta.

Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2021 kemur fram að almennir borgara hafi verið beittir misnotkun og ofbeldi af hendi framangreindra skæruliða- og glæpahópa. Meðlimir mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólk, leiðtogar frumbyggja og aðrir aðgerðarsinnar hafi staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi og líflátshótunum. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengdi umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni var gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu. Þar með talið pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Þá framlengdi stjórnlagadómstóllinn umboð sannleiks- og sáttanefndarinnar til 27. júní 2022.

Í skýrslu Amnesty International frá árinu 2022 kemur fram að þeir sem berjist fyrir mannréttindum og mótmælendur eigi undir högg að sækja í samfélaginu. Kólumbísk stjórnvöld hafi áhyggjur af áreiti og ofbeldi sem baráttufólk og aðgerðarsinnar mæti. Þó að dregið hafi úr fjölda morða, úr 90 á fyrri hluta ársins 2020 í 78 á sama tímabili 2021, þá sé það of mikið, að leiðtogar séu myrtir, aðallega í tengslum við glæpastarfsemi ólöglegra vopnaðra hópa. Í skýrslu Freedom House fyrir árið 2020 kemur fram að árásir gegn mannréttindafrömuðum og öðrum félagslegum aðgerðasinnum hafi haldið áfram allt árið 2020. Fjöldi aðgerðasinna, sér í lagi meðal jaðarsettra frumbyggja og afró-kólumbískra samfélaga voru myrtir og gerendur slíkra glæpa nutu almennt refsileysis. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að stjórnvöld hafi sett á fót aðgerðaráætlun um forvarnir og vernd fyrir mannréttinda aðgerðarsinna, félags- og samfélagsleiðtoga og fjölmiðlafólk, með það að markmiði að efla viðleitni til að rannsaka og koma í veg fyrir árásir gegn þeim. Umboðsmaður mannréttinda hafi haldið áfram að vekja athygli á aðstæðum í gegnum herferðina „Lead Life“ og sérstök deild innan lögreglunnar á sviði ríkissaksóknara, beri ábyrgð á aðgerðum sem miði að því að vernda mannréttindaaðgerðarsinna fyrir árásum ásamt rannsóknum og ákærum í þessum málum.

Í skýrslu kanadíska innflytjendaeftirlitsins kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett var á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi.

Í Kólumbíu eru til staðar lög sem eiga að tryggja jafnrétti og bann við mismunun en í desember 2011 voru lög gegn mismunun á grundvelli þjóðernis, kynferðis eða kynhneigðar samþykkt. Við gerð friðarsamkomulagsins FARC var sérstaklega fjallað um ofbeldi sem beinst hafði að LGBTI+ einstaklingum og kveðið á um sérstakar bætur og aðgerðir til þess að koma til móts við þann hóp við framkvæmd samkomulagsins. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að í ágúst 2020 hafi stjórnlagadómstóll í landinu samþykkt að ríkið beri kostnað af kynleiðréttingaraðgerðum. Í skýrslunni kemur fram að aðgerðaráætlun sem samþykkt hafi verið árið 2019 fyrir árin á eftir hafi miðað að því að tryggja réttindi hinsegin fólks, m.a. borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, ásamt því að efla menntakerfið, lýðræðislega þátttöku, heilbrigðisþjónustu, atvinnu- og húsnæðismarkaðinn og styðja við íþróttaiðkun og þátttöku í menningarstarfi. Í október árið 2019 sigraði Claudia López kosningar um borgarstjórastólinn í Bógóta og varð þar með fyrsta konan og fyrsti opinberlega hinsegin einstaklingurinn til að vera kjörin í það embætti. Þrátt fyrir framangreint hafa mannréttindafulltrúar og alþjóðleg mannréttindasamtök lýst yfir áhyggjum af fordómum og ofbeldi gegn hinsegin fólki og að vernd laganna sé ekki fylgt eftir í raun. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þrátt fyrir aðgerðir til að auka réttindi og vernd hinsegin fólks hafi verið tilkynnt um ofbeldi og mismunun auk kynferðisofbeldis. Kvartanir hafi verið lagðar fram vegna framgöngu öryggissveita í þessum málum og varðandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þá hafi frjálsu félagasamtökin Colombia Diversa tilkynnt að á tímabilinu 1. janúar til 18. ágúst 2020 hafi 39 LGBTI+ einstaklingar verið myrtir, þar af 26 trans einstaklingar. Í skýrslu Freedom House kemur fram að samkvæmt umboðsmanni hafi 21 LGBTI+ einstaklingar verið myrtir á fyrstu fimm mánuðum ársins 2021.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu, 13,9% og hafði aukist verulega frá árinu 2019 en minnkað frá árinu 2020. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) beri ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni frá árinu 2018, hefur frá árinu 2013 verið í gildi sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu, slík heilbrigðisþjónusta sé að mestu tryggð með sjúkratryggingakerfi landsins og meirihluti fólks sem eigi við andleg vandamál að stríða þurfi ekki að greiða fyrir slíka þjónustu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi ber fyrir sig að ástæðu flótta hans frá heimaríki megi einkum rekja til hættu vegna áreitis og ofbeldis sem hann hafi upplifað vegna kynhneigðar sinnar og vegna almenns ástands í Kólumbíu. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi upplifað mismunun á vinnustað sínum og á götum úti. Kærasti kæranda hafi verið stunginn árið 2019 og í október árið 2021 hafi flösku verið kastað í höfuð kæranda með þeim afleiðingum að hann hafi þurft að fá aðhlynningu á spítala. Þá hafi kærandi upplifað áreiti og mismunun á götum úti vegna kynhneigðar sinnar og fengið ógnandi skilaboð og símhringingar. Kærandi hafi flúið frá Kólumbíu vegna þess að hann óttist um líf sitt.  

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu.

Í greinargerð kæranda til kærunefndar , dags. 2. ágúst 2022, kemur fram að kærandi hafi beitt sér fyrir réttindum hinsegin fólks í Kólumbíu. Hann hafi tekið þátt í verkefni á vegum borgarstjóra Bógóta um að uppfræða LGBTI+ fólk um réttindi þeirra. Kærandi telji að horfa beri til þeirra starfa kæranda og líta svo á að þau geri hann berskjaldaðri fyrir ofsóknum. Kærunefnd óskaði, með tölvubréfi dags. 26. ágúst 2022, eftir nánari upplýsingum um störf kæranda. Með tölvubréfi, dags. 30. ágúst 2022 kom fram að kærandi hafi sinnt verkefni í samstarfi við borgarstjórann til loka ársins 2021. Hann hafi veitt LGBTI+ einstaklingum ráðgjöf um réttindi sín auk þess að veita sálrænan stuðning, oft fólki sem hafði upplifað fordóma og mismunun. Stundum hafi verið um hópatíma að ræða en stundum einstaklingsráðgjöf. Hann hafi hitt fólk í eigin persónu en vegna Covid-faraldursins hafi ráðgjöfin síðar verið á rafrænu formi. Kærunefnd hefur yfirfarið gögn málsins og að mati nefndarinnar verður ekki séð að þátttaka kæranda í framangreindu starfi geri það að verkum að hann sé berskjaldaðri en aðrir einstaklingar sem tekið hafa þátt í störfum frjálsra félagasamtaka. Þá verður ekki séð að kærandi sé í almennri hættu þó hann hafi starfað í verkefni um að uppfræða LGBTI+ fólk um réttindi þeirra enda benda heimildir til þess að það séu einkum leiðtogar mannréttindasamtaka sem eigi undir högg að sækja og þá sérstaklega á þeim svæðum þar sem ítök glæpahópa eru mikil.

Í framangreindum skýrslum og landaupplýsingum kemur fram að samkynhneigðir verði fyrir nokkurri mismunun í heimaríki kæranda s.s. hvað varðar aðgengi að atvinnu og húsnæði en er það mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist til ofsókna í skilningi 38. gr. laga um útlendinga. Fær það mat einkum stoð í þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gripið til til þess að bæta stöðu þessa hóps, m.a. með setningu laga sem banni mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynferðis, aðgerðaáætlunum og vitundarvakningar herferðum um réttindi LGBTI+ einstaklinga. Þá hefur stjórnlagadómstóll landsins ítrekað staðfest réttindi einstaklinga sem tilheyri LGBTI+ s.s. um rétt til að fá leiðréttingu á skráðu kyni sem og skyldu ríkisins til að greiða kostnað við kynleiðréttingaraðgerðir.

Kærandi kvaðst hafa orðið fyrir ofbeldi og hótunum sökum kynhneigðar sinnar og kvaðst óttast um líf sitt. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi ekki leitað til lögreglu vegna áreitis og mismununar sem hann hafi upplifað þar sem hann telji lögreglu ekki munu veita sér vernd. Þá hefur kærandi greint frá því að hann óttist almennt ástand í heimaríki vegna starfsemi glæpahópa. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum þar í landi og að alvarlegustu mannréttindabrot gagnvart LGBTI+ einstaklingum eigi sér stað þar sem skæruliða-, uppreisna- og glæpahópar hafi sterk ítök og svæðisbundin stjórnvöld hafi ekki fulla stjórn á svæðinu, er það mat kærunefndar að gögn sýni fram á að á öruggari svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir bendi ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í Bógóta að ómögulegt sé fyrir kæranda að leita aðstoðar yfirvalda. Þau gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að Bógóta sé talsvert öruggara svæði en önnur í landinu og að lög í heimaríki kæranda kveði á um bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og stjórnvöld hafi almennt framfylgt þeim lögum. Þá séu jafnframt til staðar frjáls félagasamtök, m.a. Colombia Diversa, sem vinni að réttindum LGBTI+-einstaklinga í landinu. Er það mat kærunefndar að yfirvöld í heimaríki kæranda séu því fær um að veita honum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi ástæðu til að óttast ofsóknir í heimaríki af öðrum ástæðum.

Kærunefnd telur gögn málsins að öðru leyti ekki benda til þess að kærandi eigi á hættu ofsóknir af því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um af öðrum ástæðum er koma fram í 1. mgr. 37. gr. laganna.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997). 

Kærandi vísar til þess að hann sé í hættu vegna ótryggs ástands í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að verða beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Bógóta, hvar kærandi kvaðst síðast hafa verið búsettur, er það mat kærunefndar að hann eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu. Að jafnaði hafi kólumbískar öryggissveitir tekið skref í þá átt að rannsaka, ákæra og refsa opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir um mannréttindabrot. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í greinargerð byggir kærandi á því að hann eigi á hættu mannréttindabrot í Kólumbíu sem yfirvöld verndi hann ekki gegn. Þá verði að líta á stöðu kæranda sem samkynhneigðs manns enda verði LGBTI+ fólk fyrir fordómum í samfélaginu í Kólumbíu.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í heimaríki kæranda telur kærunefnd að almennar aðstæður hans séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna. Þá er í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Í framangreindum skýrslum kemur fram að tilfelli áreitis og ofbeldis gagnvart einstaklingum vegna kynhneigðar og kynvitundar hafi verið skráð í Kólumbíu. Þá kemur fram að mismunun og fordómar séu til staðar í landinu. Hins vegar benda framangreindar skýrslur og gögn til þess að stjórnvöld verndi almennt borgara sína og til staðar sé kerfi sem veiti einstaklingum sem telja að brotið hafi verið á rétti sínum, aðstoð. Einnig eru ýmis frjáls félagasamtök starfandi í heimaríki, þau stærstu Colombia Diversa, kæranda sem berjast fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga og veitir þeim ýmis konar aðstoð í daglegu lífi. Kærandi hefur greint frá því að hafa stundað nám í lögfræði og starfað sem lögfræðingur í Bógóta. Kærandi er ungur og hraustur karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki lýst aðstæðum sem gefa til kynna að hann sé í slíkri stöðu að tilefni sé til að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærunefnd telur að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli félagslegra aðstæðna.

Kærandi hefur greint frá því að hafa glímt við kvíða og vanlíðan. Kærandi hefur lagt fram bréf frá sálfræðingi hjá Samtökunum ´78. Þar kemur fram að kærandi hafi komið í viðtal 21. febrúar 2022 og greint frá sögu um sjálfsskaðandi hegðun og sjálfsvígshugsanir. Hann hafi hins vegar ekki slíkar hugsanir lengur. Kærandi glími hins vegar við áfallastreitu, sorg og missi. Hann hafi upplifað ofbeldi og áföll og þjáist af streitu vegna þeirra atburða. Þá upplifi hann erfiðleika vegna skorts á tengslum við hinsegin samfélagið og andlega vanlíðan vegna útskúfunar og ofbeldis. Í framangreindum athugasemdum við 74. gr. kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans. Að teknu tilliti til gagna málsins er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki í meðferð hér á landi sem óforsvaranlegt væri að rjúfa. Þá má ráða af heimildum sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Kólumbíu að heilbrigðiskerfið sé í stakk búið til að veita kæranda þá þjónustu og aðstoð sem hann kann að þurfa á að halda, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 24. desember 2021 og sótti um alþjóðlega vernd 27. desember 2021. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum