Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Jóhanna Fjóla skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs

Jóhanna F. Jóhannesdóttir, forstjóri - mynd

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Jóhanna hefur starfað sem settur forstjóri stofnunarinnar frá 1. febrúar 2017 í fjarveru Guðjóns S. Brjánssonar sem situr á Alþingi.

Embættið var auglýst laust til umsóknar í lok nóvember síðastliðinn og var Jóhanna Fjóla metin hæfust þeirra fjögurra sem sóttu um stöðuna, samkvæmt niðurstöðu lögskipaðrar hæfnisnefndar.

Jóhanna Fjóla  hefur starfað við Heilbrigðisstofnun Vesturlands frá því að hún var sett á fót árið 2010, áður sem framkvæmdastjóri hjúkrunar- og rekstrar og sem verkefnastjóri þróunar- og gæðamála. Hún var verkefnastjóri hjúkrunar árin 2000 – 2009 en fyrir þann tíma starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún var m.a. hjúkrunarforstjóri um eins árs skeið.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Stofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands sem nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum