Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 552/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 21. nóvember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 552/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19110011 og KNU19110012

Beiðni [...], [...] og barns þeirra

um endurupptöku

 

 

I. Málsatvik

Þann 8. ágúst 2019 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 26. mars 2019, um að taka umsóknir [...], fd. [...], og [...], fd. [...] (hér eftir kærendur), og barns þeirra, [...], fd. [...], sem öll eru ríkisborgarar [...], um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda þau til Portúgals. Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum þann 12. ágúst 2019. Kærendur óskuðu eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 19. ágúst 2019. Beiðni kærenda var synjað af kærunefnd þann 10. september 2019. Þá bera gögn málsins með sér að kærendur hafi [...]. Þann 6. nóvember 2019 barst kærunefnd endurupptökubeiðni kærenda ásamt greinargerð. Dagana 7., 8. og 21. nóvember 2019 bárust kærunefnd jafnframt umbeðnar upplýsingar frá Stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kærenda.

Af beiðni kærenda má ráða að kærendur fari fram á að kærunefnd endurupptaki mál fjölskyldunnar, felli ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og geri stofnuninni að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

II. Málsástæður og rök kærenda

Í beiðni kærenda um endurupptöku er byggt á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd bárust fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á þeirra ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga. Kærendur hafi lagt fram umsóknir sínar á Íslandi þann 16. október 2018. Kærendur vísa máli sínu til stuðnings til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 580/2017.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 40. gr. við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Frá gildistöku laga nr. 80/2016 hefur framkvæmd kærunefndar útlendingamála á ákvæðinu verið með þeim hætti að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis.

Framkvæmd kærunefndar á 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, að því er varðar lok 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í ákvæðinu, hefur verið óbreytt frá gildistöku laga nr. 80/2016 en sambærilegt ákvæði var ekki að finna í eldri lögum. Í fyrstu úrskurðum nefndarinnar þar sem reyndi á ákvæðið, nr. 43/2017, 45/2017, 47/2017 og 49/2017 frá 26. janúar 2017, var niðurstaða nefndarinnar að 12 mánaða frestur skv. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laganna byrji að telja þegar kærandi sæki um alþjóðlega vernd og haldi áfram að telja þar til flutningur kæranda til endursendingarlands hefur farið fram enda sé flutningurinn á ábyrgð stjórnvalda.

Frá því að úrskurðirnir voru kveðnir upp hefur aftur á móti orðið ákveðin þróun sem nær til túlkunar og framkvæmdar á ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar. Í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 237/2019 frá 9. maí 2019 var m.a. vísað til dóma Evrópudómstólsins í málum C-201/16 Shiri frá 25. október 2017 og C-163/17 Jawo frá 19. mars 2019 varðandi túlkun á 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Var niðurstaða nefndarinnar sú að frestur skv. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar til að flytja kæranda til viðtökuríkis væri runninn út. Var því ekki heimilt að krefja annað ríki um viðtöku kæranda og c-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki uppfylltur.

Í ljósi þessara breytinga er það mat kærunefndar útlendingamála að sú forsenda sem var byggt á við upphaf framkvæmdar nefndarinnar á 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, að því er varðar Dyflinnarsamstarfið, sé ekki lengur til staðar. Í því ljósi, og að öðru leyti með vísan til reynslu af framkvæmd þessara mála og annarra ytri aðstæðna í starfi nefndarinnar, telur kærunefnd útlendingamála að lok tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli vera þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd, enda er ljóst að sú framkvæmd rúmast innan orðalags ákvæðisins. Kærunefnd telur að þessi breytta framkvæmd eigi við um þau mál sem falla undir a-, b-, og c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda gerir 2. mgr. 36. gr. laganna ekki greinarmun á þessum flokkum mála og mismunur á framkvæmd að þessu leyti fær ekki stoð í öðrum ákvæðum laga um útlendinga.

Þar sem um er að ræða breytta stjórnsýsluframkvæmd sem kærendum hefur ekki formlega verið leiðbeint um telur kærunefnd þó rétt að kærendur fái að njóta hagræðis af fyrri túlkun nefndarinnar á umræddum frestum. Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. október 2018 og hafa þau ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsóknir kærenda bárust fyrst íslenskum stjórnvöldum. Af upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun dagana 7. og 8. nóvember sl., varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutningi kærenda, má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum kærenda. Að auki hefur kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð í málum kærenda og er að mati kærunefndar ekkert í málinu sem bendir til þess að kærendur verði taldir bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknarinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kærenda hér á landi síðan kærendur lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 16. október 2018, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kærenda á þann hátt að þau eigi rétt á endurupptöku mála sinna sem endaði með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 386/2019, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Það er niðurstaða kærunefndar að endurupptaka mál kærenda. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál þeirra til efnismeðferðar.  

 

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kærenda á endurupptöku á málum þeirra.

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.

 

The appellants requests for re-examination of their case is granted.

The Directorate of Immigration shall examine the merits of the applicants application for international protection in Iceland.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Árni Helgason                                                                                   Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum