Hoppa yfir valmynd
15. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 261/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 261/2021

Miðvikudaginn 15. desember 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

 

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 26. maí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 20. maí 2021 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2020. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2020 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 57.039 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 20. maí 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. maí 2021. Með bréfi, dags. 27. maí 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 6. júlí 2021, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. júlí 2021. Athugasemdir bárust ekki. Með tölvubréfi 21. október 2021 óskaði úrskurðarnefndin eftir frekari upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins vegna kærðrar ákvörðunar og voru þær veittar með tölvubréfi 4. nóvember 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. nóvember 2021, var kæranda sent afrit af framangreindum samskiptum nefndarinnar og Tryggingastofnunar ríkisins.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er óskað eftir að farið verði yfir mál kæranda, henni finnist skrýtið ef hún þurfi að borga til baka bifreiðahlunnindi og þær eingreiðslur sem allir hafi fengið á síðasta ári. Kærandi óski eftir að fá leiðréttingu á þessum kröfum.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta 2020.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Í a-lið 2. mgr. 16. gr. sé fjallað um fjármagnstekjur og þar segi: „Tekjur umfram 90.000 kr. á ári skv. C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu teljast til tekna við útreikning á … örorkulífeyri, örorkustyrk, aldurstengdri örorkuuppbót og tekjutryggingu skv. 18.–19. gr. og 21.–22. gr. þessara laga. Ef um hjón er að ræða skiptast tekjur skv. 1. málsl. til helminga milli hjóna við útreikning bótanna. Skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.“

Í 5. mgr. 18. gr. laga um almannatryggingar sé kveðið á um áhrif tekna á örorkulífeyri samkvæmt 16. gr. laga um almannatryggingar.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem komi fram í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2020 hafi kærandi verið með örorkulífeyri og tengdar greiðslur allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 57.039 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2021 vegna tekjuársins 2020, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum.

Gerð hafi verið tillaga að tekjuáætlun fyrir kæranda í janúar 2020. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2020 væri kærandi með 240.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 312 kr. í vexti og verðbætur sameiginlega með maka. Kæranda hafi verið greitt í samræmi við þessa tekjuáætlun frá 1. janúar til [30. september] 2020.

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar þann 11. september 2020 hafi komið í ljós misræmi á milli framangreindrar tekjuáætlunar og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins. Tekjuáætlunin hafi því verið leiðrétt af Tryggingastofnun. Í nýrri tekjuætlun hafi verið gert ráð fyrir að kærandi hefði 240.000 kr. lífeyrissjóðstekjur, 130.555 kr. í launatekjur og 312 kr. í vexti og verðbætur sameiginlega með maka. Einnig hafi verið gert ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 5.223 kr. Kærandi hafi fengið greitt á grundvelli þessarar áætlunar frá 1. október til 30. nóvember 2020.

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar þann 13. [nóvember] 2020 hafi aftur komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Skattsins. Tekjuáætlun kæranda hafi því verið leiðrétt af Tryggingastofnun. Ný tekjuáætlun hafi verið að mestu óbreytt fyrir utan að gert hafi verið ráð fyrir að 427.859 kr. í launatekjur og einnig hafi verið gert ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð 17.115 kr. Kærandi hafi fengið greitt á grundvelli þessarar áætlunar frá 1. [desember] til 31. desember 2020.

Við bótauppgjör ársins 2020 hafi komið í ljós að á árinu 2020 hafi kærandi verið með 396.439 kr. í launatekjur, 231.996 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 12 kr. í vexti og verðbætur sameiginlega með maka. Einnig hafi verið tekið tillit til iðgjalds til lífeyrissjóða til frádráttar að fjárhæð 15.859 kr. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2020 hafi verið sú að kærandi hafi fengið ofgreitt í bótaflokkunum tekjutryggingu og sérstakri uppbót til framfærslu.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest af dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2020 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 3.318.668 kr. en hefði átt að fá greitt 3.235.688 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 57.039 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við þau lög og reglur sem gilda um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta. Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2020.

Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2020. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. þeirra laga ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi Tryggingastofnun kæranda tekjuáætlun í janúar 2020 þar sem gert var ráð fyrir að kærandi væri með 240.000 kr. í lífeyrisjóðsgreiðslur á árinu og 312 kr. í fjármagnstekjur. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út í samræmi við þær tekjuforsendur. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í september 2020 kom í ljós að kærandi hafði verið með launatekjur á árinu. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun, dags. 11. september 2020, þar sem gert var ráð fyrir 130.555 kr. í launtekjur og 5.223 kr. í iðgjald til frádráttar og óbreyttum lífeyrissjóðstekjum og fjármagnstekjum. Kærandi var upplýst um áætlaða kröfu að fjárhæð 39.543 kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu, fyrir framangreint tímabil. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá í nóvember 2020 kom í ljós að launatekjur kæranda höfðu verið hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun, dags. 13. nóvember 2020, þar sem gert var ráð fyrir 427.859 kr. í launatekjur og 17.115 kr. í iðgjald til frádráttar og óbreyttum fjármagnstekjum. Jafnframt var kærandi upplýst um kröfu vegna tímabilsins janúar til og með nóvember að fjárhæð 110.471 kr. Kærandi lagði fram nýja tekjuáætlun 30. nóvember 2020 þar sem hún gerði ráð fyrir 377.319 kr. í launatekjur á árinu og óbreyttum öðrum tekjum. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 16. desember 2020, var kæranda tilkynnt að ekki væri hægt að samþykkja framangreinda tekjuáætlun þar sem búið væri að ákvarða allar greiðslur ársins.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda, vegna tekjuársins 2020, reyndust tekjur kæranda vera 396.439 kr. í launatekjur, 15.859 kr. iðgjald í lífeyrissjóð til frádráttar, 231.996 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 12 kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2020 leiddi í ljós ofgreiðslu að fjárhæð 57.039 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Samkvæmt endurreikningnum fékk kærandi ofgreitt í bótaflokkunum tekjutryggingu, orlofs- og desemberuppbótum og sérstakri uppbót til framfærslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að launatekjur ársins 2020 voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Launatekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt.

Í kæru er gerð sú athugasemd að kærandi hafi þurft að endurgreiða bifreiðahlunnindi. Við skoðun gagna málsins kom í ljós að kærandi var ekki endurkrafin um uppbót vegna reksturs bifreiðar í kærðri ákvörðun en samkvæmt fyrirliggjandi gögnum missti kærandi rétt sinn til uppbótar vegna reksturs bifreiðar frá og með nóvember 2020 til september 2021.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2020.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum