Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 717/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 717/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23100033 og KNU23100034

 

Kæra [...] og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. október 2023 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir nefnd A) og [...], fd. [...] (hér eftir nefnd B), ríkisborgarar Kína, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. september 2023, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veittar vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærur fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 16. ágúst 2023, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins í 12 daga, frá 27. september til 8. október 2023. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 22. september 2023. Hinn 6. október 2023 barst kærunefnd kæra frá kærendum ásamt fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kærenda

Í kæru vísa kærendur til fyrirliggjandi ákvarðana Útlendingastofnunar. Kærendur bendi á að tilgangur ferðar þeirra sé ferðamennska. Þær hafi ætlað að sameinast hópferð í Reykjavík en vegna óvissu um samþykkt umsókna um vegabréfsáritanir hafi þær ekki lagt fram viðeigandi fylgigögn. Þær hafi fundið aðra hópferð, sem hafi verið áætluð 4. nóvember 2023, endurskipulagt ferð sína og lagt fram nýja ferðaáætlun. Þá benda kærendur á að þær muni hlíta viðeigandi lögum og reglum tengdum vegabréfsáritunum. Í heimaríki eigi þær fjölskyldumeðlimi og hafi stöðuga atvinnu og ætli því að fara aftur til heimaríkis að ferð lokinni.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru ný ferðaáætlun og gögn tengd henni.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. 

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum kærenda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsóknum þeirra, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þær gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvarðana kærenda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna mála kærenda þar sem málsmeðferð umsókna þeirra hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Fram kemur í málaskrám beggja að fylgigögnum hefði verið ábótavant og því væri umsóknum þeirra synjað. Tekið er fram að hótelbókanir kærenda, frá 27. til 30. september, svo og frá 2. til 4. október 2023 hafi verið afbókaðar. Í kæru taka kærendur fram að ferð þeirra hafi verið endurskipulögð og lögðu fram nýja ferðaáætlun og önnur gögn tengd henni því til stuðnings.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kærenda sem áhrif geta haft á niðurstöðu mála þeirra, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kærenda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.


 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration in the appellants cases are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the cases.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum