Hoppa yfir valmynd
21. september 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 352/2022 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 352/2022

Miðvikudaginn 21. september 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 11. júlí 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 107.645 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. júlí 2022. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 13. júlí 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. júlí 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins hafi verið endurreiknaðar vegna tekna á tímabilinu nóvember til desember 2021. Þann 1. nóvember 2021 hafi kærandi fengið greitt uppgjör á orlof, sem hún hafi ekki getað tekið vegna veikinda, að fjárhæð 514.093 kr. Þessi greiðsla eigi að falla undir tekjur frá janúar til október 2021. Kærandi óski eftir að greiðslan verði færð sem slík.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt, þegar einstaklingur leggi inn nýja umsókn um bætur frá stofnuninni, að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnist. Unnt er að beita heimild þessari bæði um nýja umsókn um örorkubætur/endurhæfingarlífeyri og um nýja umsókn um ellilífeyri hjá sama einstaklingi, enda sé ekki um samfellt bótatímabil að ræða. Heimildinni verði þó eingöngu beitt einu sinni um útreikning ellilífeyris. Þegar um endurhæfingar- eða örorkulífeyrisþega sé að ræða teljist umsókn vera ný ef liðin séu meira en tvö ár frá því að síðasta örorkumat hafi runnið út eða viðkomandi einstaklingur hafi verið í virkri endurhæfingu og/eða fengið greiðslur frá Tryggingastofnun.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með ellilífeyri og heimilisuppbót í nóvember og desember. Í samræmi við ákvæði 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafi allar tekjur kæranda á tímabilinu 1. nóvember 2021 til 31. desember 2021 áhrif á réttindi kæranda. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 107.645 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar úr skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn kæranda um ellilífeyri þann 23. september 2021. Kærandi hafi sent inn tekjuáætlun 25. október 2021 þar sem gert hafi verið ráð fyrir 4.835.648 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu og 132.205 kr. í makalífeyri á árinu. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 22. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um afgreiðslu umsóknar um ellilífeyri frá 1. nóvember 2021. Í bréfinu komi fram að miðað yrði við 5.093.509 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu og 1.784 kr. í vexti af innistæðum á árinu. Kæranda hafi verið greitt samkvæmt þessari tekjuáætlun í nóvember og desember 2021.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að frá 1. nóvember til og með 31. desember 2021 hafi kærandi haft 563.783 kr. í launatekjur, 978.733 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 200.000 kr. úr séreignarsjóði, 12.108 kr. í aðrar tekjur og 440 kr. í vexti og verðbætur. Tekjuáætlun Tryggingastofnunar hafi gert ráð fyrir að á því tímabili hefði kærandi einungis 850.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 296 kr. í vexti og verðbætur.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greitt á árinu 251.055 kr. en hefði átt að fá greitt 77.574 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 107.645 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Kærandi sé ósátt við að greiðsla sem hún hafi fengið í nóvember 2021 að upphæð 514.093 kr. skuli teljast til tekna við útreikning ellilífeyris hennar. Hún telji að þessi greiðsla eigi að falla undir tekjur frá janúar til október 2021 þar sem um uppgjör orlofs hafi verið að ræða sem kærandi hafi ekki getað nýtt vegna veikinda. Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá hafi launatekjur kæranda verið 514.093 kr. í nóvember 2021. Í 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 segi að við endurreikning bóta til þeirra sem hafi fengið greiðslur hluta úr bótagreiðsluári gildi að byggja skuli á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um sé að ræða tekjur sem séu staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu beri að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur hafi verið fyrir hendi í.

Tryggingastofnun beri að reikna bætur út frá þeim tekjum sem aflað sé frá þeim tíma sem bótaréttur hafi stofnast. Kæranda hafi verið greitt umrætt orlof í nóvember 2021 samkvæmt gögnum málsins og staðgreiðsluskrá. Kærandi hafi byrjað á ellilífeyri þann 1. nóvember 2021. Með vísan til ofangreindra laga- og reglugerðarákvæða beri Tryggingastofnun því að telja umrætt orlof til tekna við útreikning lífeyris til kæranda.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2021, frá 1. nóvember til 31. desember 2021. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. þeirra laga ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Í 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skuli leggja 1/12 af áætluðum tekjum bótagreiðsluársins og að bótagreiðsluár sé almanaksár, en sé um nýja umsókn að ræða skuli bótaréttur reiknaður út frá þeim tekjum umsækjanda sem aflað er frá þeim tíma sem bótaréttur stofnaðist. Samkvæmt a. lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. 

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi kærandi Tryggingastofnun tekjuáætlun, dags. 25. október 2021, vegna fyrirhugaðrar töku ellilífeyris frá 1. nóvember 2021 þar sem hún gerði ráð fyrir 4.835.648 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 132.205 kr. í makalífeyri á árinu. Með bréfi, dags. 22. nóvember 2021, samþykkti Tryggingastofnun umsókn kæranda um ellilífeyri og sendi henni nýja tekjuáætlun þar sem gert var ráð fyrir 5.093.509 kr. í lífeyrissjóðstekjur og 1.784 kr. í fjármagnstekjur. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út í samræmi við þær tekjuforsendur frá 1. nóvember 2021 til 31. desember 2021.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust tekjur kæranda vegna tímabilsins 1. nóvember 2021 til 31. desember 2021 hafa verið 563.783 kr. í launatekjur, 978.733 kr. í lífeyrissjóðstekjur, 200.000 kr. í greiðslur úr séreignarsjóði, 12.108 kr. í aðrar tekjur og 440 kr. í fjármagnstekjur. Launatekjur og lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofnar sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar hafa greiðslur úr séreignarsjóði ekki áhrif á greiðslu ellilífeyris. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna tveggja mánaða ársins leiddi í ljós að kærandi hefði fengið ofgreiddar bætur samtals að fjárhæð 107.645 kr., að teknu tillit til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að launatekjur og lífeyrissjóðstekjur voru vanáætlaðar í tekjuáætlun. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Ágreiningur málsins varðar þann tekjulið í skattframtali kæranda þar sem fram koma upplýsingar um launatekjur, þar með taldar orlofsgreiðslur. Kærandi gerir athugasemdir við að stofnunin hafi ekki tekið tillit til þess að umræddar tekjur hafi verið vegna tímabils fyrir töku ellilífeyris þó svo að þær greiðslur hafi verið greiddar eftir töku ellilífeyris. Fyrir liggur að kærandi fékk greidd laun í nóvember 2021, eftir töku ellilífeyris, sem voru vegna uppgjörs á orlofi. Kærandi gerir þær kröfur að tekið verði tillit til þess við endurreikning ársins 2021.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að kærandi hafi fengið greiðslur frá vinnuveitanda eftir töku ellilífeyris vegna uppgjörs á orlofi. Úrskurðarnefndin horfir til þess að fram kemur í staðgreiðsluskrá að umræddar greiðslur voru greiddar eftir töku ellilífeyris. Samkvæmt a. lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009, skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra, sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. Að þessu virtu fellst úrskurðarnefnd ekki á kröfu kæranda um að launatekjur hennar vegna fyrra tímabils, sem greiddar voru eftir töku ellilífeyris 2021, skerði ekki tekjutengd bótaréttindi frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2021.

Úrskurðarnefnd vill benda kæranda á að kanna þann möguleika að óska eftir breytingu á staðgreiðsluskrá hjá Skattinum.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum