Hoppa yfir valmynd
12. október 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 425/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 12. október 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 425/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22090024

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. september 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kamerún (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. september 2022, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 19. ágúst 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 13 daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. september 2022. Hinn 12. september 2022 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjölum. Hinn 21. september 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir eftirfarandi rökstuðningi frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar. Eftirfarandi rökstuðningur, sem barst kærunefnd 30. september 2022, verður rakinn í niðurstöðukafla úrskurðarins.

III.      Málsástæður og rök kæranda

Kærandi skilaði inn athugasemdum með kæru til kærunefndar ásamt fylgiskjölum. Í athugasemdum kæranda kemur fram að hann telji ákvörðun Útlendingastofnunar hafa verið ranga m.a. í ljósi þess að hann hafi lagt fram skjal með samþykki fyrir orlofi frá vinnuveitanda, flugmiða til Bandaríkjanna frá Íslandi, bankayfirlit sem sýni að hann eigi rúma 30 þúsund bandaríkjadollara í sparnað, launaseðla þar sem fram kemur að árslaun hans séu rúmlega 112 þúsund bandaríkjadollarar og kynnisbréf með upplýsingum um ferðaáætlun hans hér á landi. Fram kemur að þó að kærandi sé spenntur að heimsækja Ísland eigi hann fjölskyldu í Bandaríkjunum og hafi enga löngun til að flytja til nokkurs lands innan Schengen. Hann telji að gögnin sem hann hafi lagt fram hjá Útlendingastofnun hafi sýnt fram á áform hans um að fara aftur til Bandaríkjanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda einkum lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kamerún þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10, 11 og 13 vegna synjunar á umsókn hans, þ.e. að upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkja Schengen-samstarfsins áður en vegabréfsáritun sem sótt hafi verið um rynni út, sem og réttmæti þeirra upplýsinga sem veittar hafi verið um ferðaáætlun kæranda hér á landi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Fyrirtækið Visa Facilitation Services Global (VFS) tekur á móti umsóknum um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Bandaríkjunum fyrir hönd sendiráðs Íslands þar í landi. Umsóknir eru í framhaldinu afhentar sendiráði Íslands sem fer yfir þær í samræmi við 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 4. gr. reglugerðar um útlendinga og framangreinda reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 810/2009. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar. Komist Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að umsókn uppfylli ekki skilyrði fyrir veitingu vegabréfsáritunar sem sett eru fram í lögum um útlendinga, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 810/2009, er umsókninni synjað.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð hans hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi greinilega ekkert vitað um Ísland eða hvað hann hafi ætlað að sjá og gera hér á landi. Hann hafi heldur ekki verið búinn að gera nein plön í Frakklandi önnur en að sjá Eiffel turninn. Kærandi hafi sótt um áritun til Frakklands í júní 2022 sem hafi verið synjað. Tímabil áritunarinnar sem hann hafi sótt um hafi þá náð til 12. september 2022. Í viðtali hafi kærandi sagst telja að honum hafi verið synjað um áritun vegna þess að hann hafi ekki skilað nægjanlega skýrri ferðaáætlun fyrir þau lönd sem hann hafi ætlað að ferðast til. Ferðaáætlunin sem kærandi hafi skilað inn fyrir þessa umsókn hafi verið mjög léleg þar sem hann hafi sagst ætla að eyða öllum dögunum á Íslandi í skoðunarferð um Keflavík. Þá hafi ekki verið hægt að sannreyna gildi flugmiðanna. Taldi fulltrúi sendiráðsins ólíklegt að kærandi væri sannarlega að ferðast til Íslands heldur frekar að reyna að komast inn á Schengen-svæðið þar sem þekking hans á staðháttum hafi verið engin og öll svör mjög óáreiðanleg. Í símaviðtali hafi kærandi verið spurður út í ferðasögu sína og kvað hann umsókn sinni um vegabréfsáritun hafa verið synjað vegna skorts á ferðaáætlun, auk þess sem hann hafi ætlað að heimsækja ýmsa staði sem hann hafi ekki getað lýst. Þegar kærandi var spurður út í fyrirhugaða ferð sína greindi hann frá því að um skoðunarferð væri að ræða. Hann kvaðst ætla að ferðast einsamall og skoða helstu staðina á Íslandi og Eiffel turninn í Frakklandi. Hann kvaðst vilja fara í göngu í náttúrunni, sjá norðurljósin og smakka góðan mat. Hótelið sem hann hafi bókað hér á landi hafi orðið fyrir valinu vegna þess hve ódýrt það hafi verið. Þá kvaðst kærandi ekki eiga vini eða ættingja í Evrópu. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Hinn 30. september 2022 barst kærunefnd eftirfarandi rökstuðningur frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 9. september 2022, um að synja umsókn kæranda um vegabréfsáritun. Kemur þar m.a. fram að kærandi hafi lagt fram kynningarbréf, dags. 16. ágúst 2022, sem hafi innihaldið upplýsingar varðandi ferð hans til Íslands. Hótelbókun hafi gefið til kynna að hann hafi ætlað að gista í Keflavík í sjö daga og dvelja þar allan tímann og skoða sig um. Í símaviðtali, sem tekið hafi verið við kæranda 25. ágúst 2022, hafi starfsmaður utanríkisráðuneytisins beðið kæranda um að útskýra nánar hvað hann ætlaði að gera á Íslandi. Í viðtalinu hafi komið fram að kærandi hafi ekki getað veitt upplýsingar um dvöl sína hér á landi, þ.e. hvaða staði hann hygðist heimsækja með nákvæmum hætti. Kærandi hafi lagt fram annað kynningarbréf, dagsett sama dag og símaviðtalið hafi farið fram. Þar hafi hann nefnt að hann ætlaði að ferðast um Gullna hringinn, fara í Sky Lagoon og Highlights Walking tour og skoðunarferð um Keflavík og Reykjavík. Það sé mat Útlendingastofnunar að hafi kærandi ætlað sér að dvelja á Íslandi í sjö nætur og heimsækja framangreinda staði hefði hann átt að geta gert grein fyrir þeim ferðaáætlunum samdægurs í umræddu símaviðtali. Auk þess hafi ekki verið hægt að sannreyna flugbókanir kæranda þar sem engin bókunarnúmer hafi virkað. Þá liggi einnig fyrir í málinu að kærandi hafi nýlega sótt um vegabréfsáritun til Frakklands. Gefi það til kynna að kærandi hafi ekki ætlað sér að ferðast til Íslands heldur hafi hann verið að leita sér leiða til að koma sér inn á Schengen-svæðið. Vegna framangreinds hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar. Hafi umsókn hans því verið synjað. Eftirfarandi rökstuðningur var sendur á kæranda til andmæla 7. október 2022 en engin svör bárust frá honum vegna þessa.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi vissi lítið sem ekkert um Ísland í símaviðtali eða hvað hann hugðist gera hér á landi. Jafnframt horfir kærunefnd til þess að kærandi kvaðst ætla að eyða öllum dögunum á Íslandi í skoðunarferð um Keflavík og lagði fram hótelbókun í Keflavík fyrir sjö nætur. Verður það að teljast ótrúverðugt að mati kærunefndar í ljósi smæðar bæjarins. Eftir símaviðtalið lagði kærandi fram nýtt kynningarbréf þar sem fram kom að hann hygðist heimsækja m.a. Reykjavík og Gullna hringinn ásamt Keflavík. Kærunefnd tekur undir mat Útlendingastofnunar að hafi kærandi ætlað sér að dvelja á Íslandi í sjö nætur og heimsækja framangreinda staði hefði hann átt að geta gert grein fyrir ferðaáætlunum sínum í símaviðtalinu í stað þess að taka það fram í nýju kynningarbréfi eftir viðtalið. Þá horfir kærunefnd til þess að ekki hafi verið hægt að sannreyna flugbókun kæranda þar sem bókunarnúmerin hafi ekki virkað.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii.-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

 


 

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum