Hoppa yfir valmynd
26. maí 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði og Bókasafnssjóði 2025

Handhafar styrkja úr Barnamenningarsjóði 2025 ásamt Loga Einarssyni, menningarmálaráðherra. - myndLjósmynd: Valgarð Gíslason

Úthlutun úr Barnamenningarsjóði fyrir árið 2025 fór fram í gær, á Degi barnsins 25. maí. Í ár styrkir sjóðurinn samtals 47 fjölbreytt verkefni um alls rúmar 100 m.kr. Sjóðnum bárust 138 umsóknir fyrir tæpar 450 m.kr., en aldrei hafa fleiri umsóknir borist. Þriggja manna fagráð fjallaði um innsendar umsóknir í sjóðinn og ráðherra menningarmála samþykkti svo tillögu stjórnar sjóðsins um úthlutun.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Guðný Hilmarsdóttir, formaður stjórnar Barnamenningarsjóðs, ávörpuðu fulltrúa styrktra verkefna við úthlutunarathöfnina sem haldin var hátíðleg í Höfuðstöðinni.

Þrjár barnamenningarhátíðir á landsbyggðinni hljóta að þessu sinni hæstu styrkina, 5,5 m.kr. hver. Hér er um að ræða Barnamenningarhátíðina Þræði á Austurlandi, Púkann, hafið og sólmyrkvann á Vestfjörðum og Barnamenningarhátíð Vesturlands 2025. Pera Óperukollektif fær 5 m.kr. í sinn hlut fyrir barnadagskrá með virkri þátttöku barna á Óperudögum. Lista yfir öll verkefni styrkt af Barnamenningarsjóði í ár má sjá hér að neðan.

Ellefu verkefni styrkt af Bókasafnssjóði

Styrkjum úr Bókasafnssjóði var jafnframt úthlutað af ráðherra við sömu athöfn. Bókasafnssjóður starfar samkvæmt bókasafnslögum og er styrkjum úthlutað árlega af fengnum tillögum bókasafnsráðs.

Alls bárust 25 umsóknir að upphæð 76,3 m.kr. en til úthlutunar í ár voru 19 m.kr. sem skiptast milli 11 fjölbreyttra verkefna. Hæsta styrkinn, 4,5 m.kr., fær Borgarbókasafn Reykjavíkur fyrir verkefnið Læsi á stöðu og baráttu kvenna sem er viðburðaröð í tilefni af Kvennaárinu 2025. Þá hlýtur bókasafn Norræna hússins 3,5 m.kr. styrk fyrir verkefnið Lína, lýðræðið og lestrarævintýrið sem er sýning sem sett verður upp í Norræna húsinu áður en hún ferðast um landið í samstarfi við bókasöfn. Verkefnið vísar til Línu langsokks og vinnur með hugtakið lýðræði í gegnum lestur, myndir og leiki. Meðal annarra styrkhafa eru bókasöfn Kópavogsbæjar, Rangárvallasýslu, Árborgar, Skagafjarðar og Akureyrar.

  • Logi Einarsson, ráðherra menningarmála, ásamt hluta styrkþega úr Bókasafnssjóði 2025 og sjóðstjóra. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta