Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 460/2016 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 460/2016

Í stjórnsýslumáli nr. KNU16080018

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. september 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. ágúst 2016, að taka ekki til efnismeðferðar umsókn kæranda um hæli frá [...], synja kæranda um hæli vegna aðstæðna á Ítalíu ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að umsókn hans um hæli verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 1. mgr. 46. gr. laga um útlendinga, sbr. 45. gr. sömu laga. Til vara gerir kærandi þá kröfu að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 4. mgr. 12. gr. f útlendingalaga. Til þrautavara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. og 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests skv. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Í gögnum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu greinir að kærandi hafi komið á lögreglustöðina við Hverfisgötu þann 15. október 2014 og óskað eftir hæli. Þann 7. janúar 2015 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Kærandi kærði þá ákvörðun við birtingu 9. janúar 2015. Þann 9. júlí 2015 felldi kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og endursendi málið til stofnunarinnar, sem tók ákvörðun öðru sinni þann 23. september 2015. Með þeirri ákvörðun var kæranda synjað um hæli hér á landi og um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðun Útlendingastofnunar við birtingu þann 25. september 2015. Kærunefnd útlendingamála kvað upp úrskurð í máli kæranda þann 14. janúar 2016 þar sem ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. september 2015, var staðfest.

Með úrskurði, dags. 28. júní 2016, afturkallaði kærunefnd útlendingamála úrskurð sinn í máli kæranda, dags. 14. janúar 2016, með vísan til þess að ekki hefði komið nægjanlega skýrt fram í ákvörðun Útlendingastofnunar að stofnunin hefði synjað að taka kröfu kæranda um hæli frá heimaríki til efnismeðferðar, sbr. 1. mgr. 46. gr. a útlendingalaga. Var ákvörðun Útlendingastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar að nýju.

Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun ásamt talsmanni sínum þann 3. ágúst 2016. Útlendingastofnun tók ákvörðun í máli kæranda þann 16. ágúst sl. þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að taka umsókn kæranda um hæli frá [...] ekki til efnislegrar meðferðar, synja honum um hæli vegna aðstæðna á Ítalíu og synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga. Kærandi kærði ákvörðun Útlendingastofnunar þann 7. september 2016. Kærunefnd hefur borist greinargerð kæranda, dags. 17. október 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað til 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga þar sem kveðið sé á um að flóttamaður skv. 44. gr. sem er hér á landi eða kemur hér að landi eigi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér hæli. Þá segir í a-lið 1. mgr. 46. gr. a að með fyrirvara um ákvæði 45. gr. geti stjórnvöld synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn skv. 1. mgr. 46. gr. ef umsækjanda hefur verið veitt hæli í öðru ríki.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að í málinu liggi fyrir að kæranda hafi verið veitt réttarstaða flóttamanns á Ítalíu. Þá gildi dvalarleyfi hans í landinu til [...]. Hins vegar þurfi að líta til þess hvort ákvæði 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga komi í veg fyrir að kærandi verði sendur til Ítalíu, en í ákvæðinu er m.a. lagt bann við því að senda útlending til svæðis þar sem hann sé í yfirvofandi hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Útlendingastofnun vísar til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í málum M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (mál nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011 og Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Með dómunum hafi því verið slegið föstu að 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu leggi ekki skyldu á aðildarríki að sjá öllum sem dvelji innan lögsögu þeirra fyrir heimili og ekki almenna skyldu á aðildarríki að veita viðurkenndum flóttamönnum fjárhagsaðstoð í því skyni að gera þeim kleift að viðhalda tilteknum lífskjörum. Í ljósi umræddra dóma verði ekki séð að aðstæður kæranda á Ítalíu varðandi húsnæði, atvinnu og félagslega þjónustu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 45. gr. útlendingalaga.

Þá er fjallað um ákvörðun Mannréttindadómstólsins í máli A.M.E. gegn Hollandi (mál nr. 51428/10) frá 13. janúar 2015. Málið hafi varðað ríkisborgara Sómalíu sem hafði viðbótarvernd á Ítalíu en sótt um hæli í Hollandi vegna aðstæðna á Ítalíu. Að mati dómstólsins hafði umræddur aðili ekki sýnt fram að að hann væri í yfirvofandi hættu á að verða fyrir meðferð er bryti í bága við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, yrði hann sendur aftur til Ítalíu. Með hliðsjón af framangreindu var það mat Útlendingastofnunar að 45. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði sendur til Ítalíu. Var umsókn hans um hæli frá [...] því synjað um efnismeðferð á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Því næst leysir Útlendingastofnun úr um hvort efni standi til að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga. Kemur fram það mat Útlendingastofnunar að á Ítalíu séu engin viðvarandi mannréttindabrot og að íbúar landsins geti fengið vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum með aðstoð lögreglu eða annarra yfirvalda. Þá taki ákvæði 12. gr. f útlendingalaga ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða vegna húsnæðisskorts. Auk þess hafi ekkert komið fram sem gefi til kynna að kærandi þurfi vernd af heilsufarsástæðum. Var kæranda því synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Loks var kæranda synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið, sbr. 1. mgr. 12. gr. f útlendingalaga.

Kæranda var vísað frá landi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga og var réttaráhrifum ekki frestað með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Aðalkrafa kæranda er byggð á því að ekki megi senda hann til Ítalíu þar sem sterkar vísbendingar séu um að aðbúnaður og aðstæður á Ítalíu sem hann hafi þurft að búa við og eigi von á varðandi húsnæði, atvinnu og félagslega þjónustu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Samkvæmt 1. mgr. 45. megi ekki senda útlending til svæðis þar sem hann eigi m.a. í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Í þessu ljósi sé íslenskum stjórnvöldum óheimilt að beita ákvæðum 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga þar sem kærandi njóti verndar 45. gr. laganna.

Kærandi segir margt benda til þess að ítölsk stjórnvöld ráði ekki við þann fjölda hælisleitenda og flóttafólks sem þar hafi komið að landi. Aðstæður þessa fólks séu mjög bágbornar, móttökuframkvæmd afar slæm og lítil von fyrir þá sem fái vernd að koma undir sig fótunum og skapa sér mannsæmandi líf í landinu. Húsnæðisskortur og atvinnuleysi sé mjög algengt vandamál flóttamanna á Ítalíu. Auk þess staðfesti alþjóðlegar skýrslur og heimildir að þeir sem hlotið hafi alþjóðlega vernd þurfi alfarið að bjarga sér sjálfir í framhaldinu án nokkurrar fjárhags- eða félagsaðstoðar. Þá séu möguleikar á aðlögun í kjölfar verndar afar stórt vandamál í ítalska hæliskerfinu.

Kærandi byggir varakröfu sína á ákvæði 2. ml. 4. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga. Samkvæmt ákvæðinu megi veita útlendingi dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum ef hann uppfyllir skilyrði 1. mgr. 12. gr. f og a-e liða 1. mgr. 12. gr. g, þó hann hafi ekki haft dvalarleyfi á þeim grundvelli, ef hann hefur dvalið hér á landi í tvö ár hið minnsta vegna málsmeðferðar stjórnvalda um umsókn um hæli og sérstakar ástæður mæli ekki gegn því. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 15. október 2014 og því dvalið hér á landi í tengslum við hælisbeiðni sína í rúm tvö ár. Í málinu bendi ekkert til þess að kærandi hafi átt þátt í þessari töf á afgreiðslu málsins. Þá sé ljóst að kærandi uppfylli öll skilyrði a-e liða 1. mgr. 12. gr. g.

Vegna þrautavarakröfu kæranda er vísað til þess að samkvæmt 1. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga sé unnt að veita dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. vegna erfiðra almennra aðstæðna í landi sem honum yrði vísað til. Samkvæmt greinargerð með ákvæðinu verði að taka mið af svipuðum aðstæðum og gert sé í málum samkvæmt VII. kafla laganna, svo sem almennra aðstæðna í landi sem viðkomandi yrði sendur til, þar á meðal hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Þá útiloki greinargerðin á engan hátt að ákvæðið geti átt við um neyð af efnahagslegum rótum. Í úrlausnum Mannréttindadómstóls Evrópu hafi komið fram að aðildarríki mannréttindasáttmála Evrópu beri ólíkar skyldur gagnvart hælisleitendum og einstaklingum með alþjóðlega vernd. Á hinn bóginn séu einstaklingar með alþjóðlega vernd einnig sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur stöðu sinnar vegna og engin ástæða til að greina þar á milli.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Afmörkun úrlausnarefnis

Kærunefnd telur að kærandi sé fyrst og fremst að sækja um hæli frá heimaríki sínu [...]. Málsástæður hans gefa þó einnig til kynna að hann sé að sækja um hæli frá Ítalíu, því ríki sem þegar hefur veitt honum vernd. Tekur neðangreind umfjöllun mið af því.

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, með síðari breytingum, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951 ásamt viðauka við samninginn frá 1967 og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Einstaklingsbundin staða kæranda

Við meðferð máls er litið til þess hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem geti haft áhrif á niðurstöðu máls hans. Með því getur verið átt við hvort kærandi hafi mátt þola pyndingar, hvort kærandi sé barn eða hvort umsókn hans varði börn, hvort kynhneigð eða kynferði kæranda geti haft áhrif eða hvort kærandi geti verið ríkisfangslaus. Mat á stöðu kæranda fer ávallt fram og eru þau atriði sem koma til skoðunar ekki tæmandi.

Í máli þessu hefur ekkert komið fram sem gefur til kynna að kærandi teljist einstaklingur í viðkvæmri stöðu.

Umsókn um hæli frá heimaríki. Ákvæði 45. og 46. gr. a laga um útlendinga

Í 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga kemur fram að flóttamaður skv. 44. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, á samkvæmt umsókn rétt á að fá hér hæli frá heimalandi sínu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. a, og með fyrirvara um ákvæði 45. gr., synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 46. gr. laganna ef umsækjanda hefur verið veitt hæli í öðru ríki.

Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Við mat á 45. gr. laga um útlendinga verður m.a. að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þann 2. apríl 2013 lýsti mannréttindadómstóll Evrópu kæru í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) ótæka á þeim grundvelli að sú meðferð, sem kærandi hlaut bæði sem hælisleitandi og einstaklingur sem hlotið hafði vernd á Ítalíu, gæti ekki talist brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá væri ekkert sem benti til þess að kærandi málsins myndi ekki njóta tiltækra úrræða á Ítalíu eða, ef þörf væri á, eða að ítölsk stjórnvöld myndu ekki bregðast við frekari beiðnum hennar um aðstoð. Var það mat dómstólsins að ekki væri hægt að gera þá kröfu til aðildarríkja að veita öllum flóttamönnum heimili eða fjárhagslega aðstoð til þess að viðhalda ákveðnum lífsskilyrðum. Kæranda málsins hafi staðið til boða ýmis þjónusta við komuna til landsins og eftir að vernd hafi verið veitt myndi hún enn standa henni til boða. Jafnframt ætti kærandi rétt á ýmsum réttindum samkvæmt ítölskum lögum líkt og ítalskir ríkisborgarar. Dómstóllinn tók fram að ýmis vandamál hafi risið í tengslum við aðstæður flóttamanna á Ítalíu. Hins vegar væru þau ekki kerfislæg og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefði fjallað um ýmsar framfarir í þeim tilgangi að laga galla í kerfinu. Í ljósi þess var kæran lýst ótæk til meðferðar og vísað frá.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2015 – Country Reports on Human Rights Practices – Italy (United States Department of State, 13. apríl 2016),
  • UNHCR Recommendations on Important aspects of refugee protection in Italy (UNHCR, júlí 2013),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Italy (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015),
  • Reception conditions in Italy: Report on the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, október 2013),
  • Endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, greinargerð innanríkisráðuneytisins í desember 2015 (Innanríkisráðuneytið, desember 2015) og
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014).

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk yfirvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar hælisleitenda og flóttamanna þar í landi. Samkvæmt ofangreindum skýrslum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur stofnunin meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalsks hæliskerfis til að taka við skyndilegu og verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað hælisleitenda og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma hælisleitendur sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk yfirvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja. Hins vegar hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn flutningi flóttamanna til Ítalíu.

Kærunefndin hefur einnig tekið mið af dómi Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015 þar sem fjallað var um málsmeðferð og skilyrði til móttöku hælisleitanda á Ítalíu og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri fyrir hendi kerfislægur galli sem leiddi til þess að hælisleitandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta þar ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 45. gr. útlendingalaga.

Að framangreindu virtu og að teknu tilliti til aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum hælisleitenda og þeirra sem hafa þegar hlotið alþjóðlega vernd á Ítalíu verði ekki taldir svo alvarlegir að þeir gefi ástæðu til að ætla að kærandi muni standa frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð á Ítalíu verði hann sendur þangað. Þá benda gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu, bæði fyrir landsrétti og Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með því er tryggt að kærandi verði ekki sendur áfram til svæðis sem 45. gr. laga um útlendinga tekur til. Er það niðurstaða kærunefndar að endursending kæranda til Ítalíu feli því ekki í sér brot á 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða 13. gr. hans.

Í málinu liggur fyrir að kæranda hefur verið veitt réttarstaða flóttamanns á Ítalíu. Kæranda hefur því verið veitt vernd í öðru ríki en heimaríki sínu. Með hliðsjón af 45. gr. útlendingalaga og í ljósi ofangreindra upplýsinga telur kærunefndin að Útlendingastofnun hafi verið heimilt að synja efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli frá heimaríki sínu, [...], með vísan til a-liðar 1. mgr. 46. gr. a útlendingalaga.

Umsókn um hæli frá dvalarríki. Ákvæði 44. gr. útlendingalaga

Í ljósi þess að kærandi ber fyrir sig aðstæður á Ítalíu telur kærunefndin rétt að fjalla einnig um umsókn kæranda eins og hann væri að sækja um hæli þaðan.

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að þær aðstæður sem bíði hans á Ítalíu séu ómannúðlegar og vanvirðandi.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Í lögskýringargögnum með þessari skilgreiningu kemur fram að heimaland sé það land sem viðkomandi eigi ríkisfang. Í máli kæranda er ljóst að hann er með réttarstöðu flóttamanns og gilt dvalarleyfi á Ítalíu. Kærandi, sem er ríkisborgari [...], getur ekki átt rétt á hæli sem flóttamaður hér á landi vegna aðstæðna sinna á Ítalíu, því ríki sem veitt hefur honum vernd. Verður honum synjað um stöðu flóttamanns hér á landi á þeim grundvelli. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar þá telur kærunefndin heldur ekki að endursending kæranda til Ítalíu brjóti gegn 45. gr. útlendingalaga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalagaVarakrafa kæranda er að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 4. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Samkvæmt 1. mgr. 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt ekki sé fullnægt öllum skilyrðum 11. gr., ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í athugasemdum við 12. gr. f laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 115/2010, greinir að fara skuli fram heildarmat á öllum þáttum málsins áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða er veitt.

Samkvæmt 2. málsl. 4. mgr. 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi ef hann uppfyllir skilyrði a.–e.-liðar 1. mgr. 12. gr. g, þó að hann hafi ekki leyfi á þeim grundvelli, ef hann hefur dvalið hér á landi í tvö ár hið minnsta vegna málsmeðferðar stjórnvalda um umsókn um hæli. Fyrir liggur að kærandi hefur dvalið hér á landi frá því hann lagði fram umsókn um hæli þann 15. október 2014. Eins og fram hefur komið kvað kærunefnd útlendingamála upp úrskurð í máli kæranda þann 14. janúar 2016 sem nefndin afturkallaði þann 28. júní sama ár. Með úrskurði, dags. sama dag, var ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar að nýju. Að mati kærunefndar þykir rétt að líta svo á að umræddri meðferð málsins fyrir nefndinni hafi ekki lokið endanlega fyrr en með síðastnefndum úrskurði, dags. 28. júní 2016, þar sem lagt var fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda fyrir að nýju. Telst kærandi því hafa dvalið hér á landi í meira en tvö ár vegna málsmeðferðar stjórnvalda.

Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a.-e.-liðar 1. mgr. 12. gr. g laga um útlendinga. Ennfremur telur kærunefndin að engar sérstakar ástæður mæli gegn því að veita kæranda dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 1. mgr. 12. gr. f.

Með vísan framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að fella skuli úr gildi hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar að því er varðar úrlausn um veitingu dvalarleyfis samkvæmt 12. gr. f laga um útlendinga og leggja fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 4. mgr. 12. gr. f laganna.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest hvað varðar umsókn kæranda um hæli hér á landi. Hins vegar telur kærunefndin rétt að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 4. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga nr. 96/2002.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest hvað varðar umsókn kæranda um hæli. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 4. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga nr. 96/2002.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed with regard to the appellant’s application for asylum. The Directorate of Immigration shall issue the applicant a residence permit based on Article 12 f, paragraph 4, of the Act on Foreigners no. 96/2002.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson                                                               Anna Tryggvadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum