Hoppa yfir valmynd
25. október 2013 Innviðaráðuneytið

Samkomulag um innanlandsflug undirritað í dag

Fulltrúar ríkisstjórnar, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group skrifuðu í dag undir samkomulag um innanlandsflug.

Í samkomulaginu kemur fram að aðilar eru sammála um að fyrsti kostur fyrir innanlandsflugvöll sé á höfuðborgarsvæðinu og að flugvöllurinn í Vatnsmýri verði starfræktur til ársins 2022. Í samkomulaginu felst einnig að vinna verður hafin við að fullkanna aðra kosti fyrir framtíðarstaðsetningu flugvallar á höfuðborgarsvæðinu.

Stofnaður verður stýrihópur undir formennsku Rögnu Árnadóttur sem er sameiginlegur fulltrúi þeirra þriggja aðila sem að samkomulaginu standa. Til þeirrar vinnu verður boðið hagsmunaaðilum á svæðinu, auk fulltrúa þeirra sem beitt hafa sér fyrir því að flugvöllurinn í Vatnsmýri verði eða fari.

Skrifað var undir samkomulag um innanlandsflug í dag.

Myndin er tekin við undirritunina. Frá vinstri: Jón Gnarr borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum