Hoppa yfir valmynd
5. nóvember 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Minnt á ráðstefnuna Tímamót í velferðarþjónustu

Velferðarráðuneytið og Nýsköpunarmiðstöð Íslands boða til ráðstefnu og málstofa dagana 7. – 8. nóvember. Sjálfstæði, nýsköpun og samvinna eru lykilhugtök ráðstefnunnar þar sem fjallað verður um velferðarþjónustuna á Íslandi, stöðu hennar og verkefnin sem framundan eru í ljósi. Fjöldi þeirra sem þurfa aðstoð og þjónustu vex hröðum skrefum og kröfur um gæði og einstaklingsmiðaða þjónustu aukast. Um þetta verður fjallað, ræddar lykilspurningar sem þetta varða og sjónum beint að tækifærum sem framundan eru.

Dagskráin hefst með ávarpi Ásmundar Einars Daðasonar félags- og jafnréttismálaráðherra sem fjallar um málin undir yfirskriftinni Tækifæri til breytinga. Auk fjölbreyttra erinda þar sem meðal annars verður rætt um ný lög og nýjar áherslur í velferðarþjónustu, tengsl heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun við velferðarmál, velferðarþjónustu frá sjónarhóli sveitarfélaganna og fleira, verða haldnar örkynningar á verkefnum sem breytt geta stöðu fólks, undir dagskrárliðnum Lausnagallerí.

Sérstakar málstofur verða haldnar fimmtudaginn 8. nóvember þar sem kafað verður dýpra ofan í skilgreind málefni, svo sem lög um þjónustu við fatlað fólk með langvinnar stuðningsþarfir, umfjöllun og samtal við notendur og aðra hagsmunaaðila um framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og nýsköpun í velferðarþjónustunni með sérstaka áherslu á norræna nýsköpun.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum