Hoppa yfir valmynd
28. september 2016 Dómsmálaráðuneytið

Þjóðskrá Íslands opnar fyrir aðgang að kjörskrárstofni

Þjóðskrá Íslands hefur opnað fyrir aðgang að kjörskrárstofni sem þýðir að kjósendur geta með einföldum hætti kannað hvar þeir eru skráðir á kjörskrá í komandi þingkosningum. Á vefnum kosning.is er innsláttarform þar sem hægt er að kalla fram upplýsingar úr kjörskrárstofninum.

Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu skráð lögheimili fimm vikum fyrir kjördag, 24. september síðastliðinn. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.

Sjá aðgang að kjörskrárstofni á vefnum kosning.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum