Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 23/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 30. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 23/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120049

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. desember 2018 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. desember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi gerir þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi í fyrsta lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í öðru lagi með vísan til 2. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 7. september 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 27. september 2018, var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 9. október 2018 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 12. desember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 18. desember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann sama dag til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum barst kærunefnd 2. janúar 2019 og þá bárust frekari gögn frá kæranda þann 7. janúar 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að þýsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Þýskalands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun m.a. greint frá því að hann þjáist af [...] sem hann taki [...] við og að hann sé með verki í hægri handlegg. Þá kvaðst hann glíma við stöðugan ótta og kvíða eftir mikla misnotkun og ofbeldi í heimaríki. Kærandi greini frá því að hann hafi flúið heimaríki sitt vegna pólitískra ofsókna, þar hafi hann m.a. orðið fyrir líkamlegu ofbeldi. Samkvæmt komunótum frá Göngudeild sóttvarna sé kærandi greindur með [...], sem hann taki lyf við ásamt því að honum hafi verið ávísað lyfjum vegna verkja og bólgna í handlegg, hálsi og höfði. Þá komi fram að hann vakni oft upp vegna martraða og að hann lifi í stöðugum ótta við að vera sendur aftur til heimaríkis. Einnig sé sjón hans farin að skerðast. Kærandi bendi á að í ljósi þessara atriða og þeirra staðreyndar að hann sé með [...], sem fyrst hafi verið greind í Þýskalandi en ekki heimaríki, sé ljóst að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá geri kærandi athugasemdir við að vera sendur aftur til Þýskalands, en þarlend stjórnvöld hafi þegar synjað honum um vernd og því bíði hans ekkert annað en áframsending til heimaríkis. Þá kveði kærandi sig vera fórnarlamb fordóma í Þýskalandi.

Krafa kæranda er reist á því að hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga, sem mælir fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, einkum 2. mgr. 42. gr. sem kveður á um bann við sendingu fólks til svæðis þar sem ekki er tryggt að það verði ekki áframsent til svæðis þar sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (e. indirect refoulement). Kærandi bendi á að mjög hátt hlutfall synjana á fyrsta stjórnsýslustigi í Þýskalandi sé frá heimaríki kæranda eða um [...]%. Veki svo hátt hlutfall synjana furðu miðað við hið alvarlega mannréttindarástand sem sé í ríkinu sem bendi til þess að málsmeðferð þýskra stjórnvalda hafi verið verulega ábótavant. Þá bendi kærandi á að það sé alls kostar óvíst hvort kæranda standi til boða nauðsynleg meðferð við sjúkdómi sínum í heimaríki en ljóst sé að stjórnvöld í Þýskalandi séu þegar farin að leggja drög að flutningi hans þangað, sbr. bréf þarlendra stjórnvalda, dags. 24. apríl 2018, vegna vegabréfs hans. Að mati kæranda geti íslensk stjórnvöld aðeins tryggt að kærandi verði ekki áframsendur frá Þýskalandi með því að fara fram á einstaklingsbundna tryggingu þess efnis frá þýskum stjórnvöldum en að öðrum kosti skuli þau taka mál hans til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 42. gr. sömu laga.

Telji kærunefnd að mál kæranda falli ekki undir 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, byggir kærandi á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í greinargerð sinni vísar kærandi m.a. til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, til ummæla í frumvarpi sem varð að lögum nr. 81/2017 um breytingu á lögum um útlendinga og túlkunar íslenskra stjórnvalda á þeim ummælum. Þá bendi kærandi m.a. á að frá því að ákvæði um sérstakar ástæður hafi komið inn í lög um útlendinga hafi þróunin verið sú að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum og er því alfarið hafnað af hálfu kæranda að sjónarmið um skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins hafi nokkuð vægi við mat á sérstökum ástæðum. Þá séu skilyrði reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 varðandi sérstakar ástæður mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 80/2016 um útlendinga. Hvergi sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Kærandi telji þessar kröfur í hinni kærðu ákvörðun ekki hafa stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærandi leggur áherslu á að framkvæmt sé ítarlegt einstaklingsbundið mat á því hvort viðkvæm staða hans verði talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Þýskalandi. Kærandi tekur fram að við endursendingu til Þýskalands sé líklegt að hann muni sæta varðhaldi eða vist í flóttamannabúðum með afar takmarkaðri þjónustu þar til hann verði fluttur til heimaríkis. Með vísan til viðkvæmrar stöðu kæranda, og yfirvofandi brottvísun hans frá Þýskalandi beri íslenskum stjórnvöldum að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Þýskalands á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja þýsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] sem kom einn hingað til lands. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að kærandi glími við verki í öxl, sé með mjög slæman tanngarð, hafi verið greindur með [...] og hafi takmarkaðan skilning á sjúkdómnum og áhættuþáttum hans. Meðal gagna málsins er afrit af bréfi heilbrigðisstarfsmanns til Útlendingastofnunar þar sem óskað er eftir aukinni þjónustu við kæranda vegna [...]. Kærandi kveðst jafnframt lifa í stöðugum ótta við að vera sendur aftur til heimaríkis. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvað kærandi andlega heilsu sína ekki góða og hann þjáist af ótta og kvíða vegna misnotkunar og barsmíða sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki.

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi hefur verið greindur með [...] og fyrir liggur mat heilbrigðisstarfsmanns um að hann hafi tilteknar sérþarfir sem taka hefur þurft tillit til við móttöku hans hér á landi og tengjast því að hann er með [...]. Að mati kærunefndar telst kærandi því í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Human Rights Report – Germany (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 31. mars 2018),
  • Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),
  • From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exiles (ECRE), 26. maí 2017),
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þó hafi þýsk yfirvöld sætt gagnrýni frjálsra félagasamtaka vegna yfirfullra móttökumiðstöðva og búsetuúrræða einkum á árunum 2014 og 2015 en vegna þess hve verulega hafi dregið úr umsóknum á árunum 2016 og 2017 hafi ástandið batnað til muna. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt dómaframkvæmd þýskra dómstóla felur orðalagið „nauðsynleg heilbrigðisþjónusta“ ekki einvörðungu í sér bráðaþjónustu. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna og annarra meðferðaraðila. Þó eru dæmi um að umsækjendur hafi átt í erfiðleikum með að nálgast slíka þjónustu, m.a. vegna fjarlægða milli búsetu- og meðferðarúrræða. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að glæpum gegn innflytjendum í Þýskalandi hafi fjölgað á undanförnum árum en nýlega hafi stjórnvöld gert aðgerðaráætlun til að sporna við fordómum þar í landi.

Samkvæmt skýrslu gagnagrunns Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi teknar af dómstólum. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Ákvarðanir um varðhald eru endurskoðaðar reglulega af dómstólum og ekki sjaldnar en á fjögurra vikna fresti. Við meðferð slíkra mála hjá dómstólum eiga einstaklingar rétt á tiltekinni aðstoð túlka og geta kallað til lögmann sér til aðstoðar gegn greiðslu.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það jafnframt með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun eða endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra, þ.m.t. málsástæður sem varða heilsufar. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi eða að aðstæður hans að því leyti séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins þá ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þótt fallast megi á með kæranda að einhverjar líkur séu á því að hann verði settur í varðhald við komu til Þýskalands benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að ákvarðanir um varðhald útlendinga í Þýskalandi séu almennt teknar í samræmi við gildandi lög og grundvallarréttindi þar í landi. Þá séu aðstæður og aðbúnaður einstaklinga sem eru frelsissviptir á þeim grundvelli almennt viðunandi. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að kærandi teljist eiga erfitt uppdráttar í Þýskalandi eða að öðru leyti séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 12. nóvember 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 7. september 2018.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018 voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Af greinargerð kæranda verður ráðið að hann telji ákvæði reglugerðar nr. 540/2017, sbr. reglugerð nr. 276/2018, ekki eiga sér viðhlítandi stoð í lögum og ganga gegn lögmætisreglunni.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 6. september 2018. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 7. september s.á. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Þýskalands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                          Árni Helgason

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum