Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Besta fjárfestingin að enda barnahjónabönd og tryggja menntun unglingsstúlkna

Unglingsstúlkur í Malaví. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Að enda barnahjónabönd og ótímabærar barneignir sem þeim fylgja auk þess að tryggja menntun stúlkna til átján ára aldurs er að mati Ágústu Gísladóttur forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongve besta fjárfestingin í Malaví í dag. Þetta kemur fram í pistli sem hún skrifar í Heimsljós.

Hún segir það hafa verið kærkomna tilbreytingu í síðasta mánuði að fara á fund hjá Alþjóðabankanum í Lilongve og heyra hagfræðing bankans kynna athugun bankans á kostnaðinum sem fylgir barnahjónaböndum og ótímabærum barneignum sem þeim fylgja.  Nýtt tölublað Malaví hagtíðinda frá Alþjóðabankanum hafi borið yfirskriftina “Að fjárfesta í menntun stúlkna” og þar sé meðal annars fjallað um efnahagslegar afleiðingar þess hversu tiltölulega fáar stúlkur ljúka framhaldsskóla í Malaví miðað við nágrannalöndin og afleiðingar  barnahjónabanda og barneigna meðal stúlkna undir átján ára aldri.

Barnahjónabönd kynferðislegt ofbeldi gegn börnum

„Allt í einu var þetta „félagslega”, „mjúka” mál sem einkum jafnréttis- og kvennasamtök hafa fjallað um á fundum sínum, orðið grjóthart umræðuefni sem fyrrverandi seðlabankastjórar og hagfræðiprófessorar í salnum gátu lýst skoðun sinni og andúð á,“ skrifar Ágústa og bætir við: „Sem betur fer holar dropinn steininn og allar götur síðan stjórnarskránni var breytt árið 2017 og barnahjónabönd endanlega bönnuð hafa framámenn og konur barist ötullega gegn þessari þjóðarskömm. Það er til marks um breyttan tíðaranda í Malaví að í blaðagrein í nóvember á síðasta ári var fjallar um barnahjónabönd – og sagt að réttnefnið væri „kynferðisofbeldi gegn börnum.”“

Ágústa segir að í skýrslu Alþjóðabankans sé sett fram athyglisvert orsakasamhengi milli barnahjónabanda, barneigna ungra stúlkna og skólagöngu þeirra. „Það er næsta víst að hvert ár sem unglingsstúlka gengur menntaveginn minnka líkurnar töluvert á því að hún giftist og eignist börn undir átján ára aldri. Barnahjónabönd ýta einnig undir barneignir. Mesti ávinningurinn er af því að koma í veg fyrir barneignir stúlkna undir átján ára aldri og lækka þar með fæðingartíðni í landinu og koma í veg fyrir ýmsan kostnað sem fylgir því að börn ala börn,“ segir Ágústa.

Pistillinn í heild.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum