Hoppa yfir valmynd
24. mars 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mörk kjördæma í Reykjavík þau sömu og við síðustu alþingiskosningar

Við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 9. apríl um skilmála ríkisábyrgðar á láni út af ICESAVE-samningunum, eiga mörk kjördæma að vera þau sömu og við síðustu alþingiskosningarnar, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 91/2010, um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Landskjörstjórn hefur í dag samþykkt ályktun um að auglýsing nr. 346/2009, sem fjallar um mörk kjördæmanna tveggja í Reykjavík við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009, skuli fylgt við þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Gildir það einnig um fyrirmæli hennar um hvar mörkin skuli vera í hverjum mánuði, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 24/2000, um kosningar til Alþingis, en þau ráða því hvar þeir, sem taka ber á kjörskrá í Reykjavík en búa erlendis eða eru óstaðsettir í hús í Reykjavík, greiða atkvæði. Samkvæmt því greiða þeir sem tilheyra þessum hópum og eru fæddir 1. til 15. hvers mánaðar atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem eru fæddir 16. dag mánaðar eða síðar í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Sjá nánar hér á vef landskjörstjórnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum