Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 137/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 8. apríl 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 137/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20020016

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. febrúar 2020 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. janúar 2020, um að synja henni um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 61. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar þann 8. mars 2019 með gildistíma til 31. desember 2019. Þann 26. september 2019 sótti kærandi um endurnýjun á því leyfi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. janúar 2020, var umsókn kæranda synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 7. febrúar sl. en kæru fylgdi greinargerð umboðsmanns.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar var vísað til þess að samkvæmt b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga væri það forsenda fyrir útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar að áður hafi verið gefið út atvinnuleyfi samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2020, hafi kæranda verið synjað um atvinnuleyfi. Væri stofnuninni því ekki heimilt að veita kæranda dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar og var umsókn hennar því synjað. Bæri kæranda að yfirgefa landið innan 15 daga frá móttöku ákvörðunarinnar. Tekið var fram að ólögmæt dvöl gæti leitt til brottvísunar og endurkomubanns, sbr. 98. gr. og 101. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir m.a. á því að horfa beri heildstætt á málið með hliðsjón af hagsmunum félagsins sem hún starfi hjá. Í greinargerð gerir kærandi að öðru leyti margvíslegar athugasemdir við ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli hennar. Þar sem kæra á ákvörðun Vinnumálastofnunar sætir endurskoðun hjá félagsmálaráðuneytinu, sbr. 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, er að mati kærunefndar ekki þörf á að reifa frekar efni greinargerðarinnar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 61. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. eru skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis skv. ákvæðinu m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. laganna, sbr. a-lið 61. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga, þ.m.t. ákvarðanatöku um hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi. Athugasemdir kæranda varðandi mat Vinnumálstofnunar á umsókn hans um atvinnuleyfi koma því ekki til skoðunar hjá kærunefnd útlendingamála.

Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði því að kæranda yrði veitt atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar með ákvörðun, dags. 24. janúar 2020. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar því staðfest.

Samkvæmt framangreindu hefur kærandi ekki dvalarleyfi hér á landi. Kæranda er því ekki heimil áframhaldandi dvöl hér á landi og ber henni að yfirgefa landið innan 15 daga frá móttöku úrskurðarins. Athygli kæranda er vakin á því að ef hún yfirgefur ekki landið innan frestsins kann að vera heimilt að brottvísa henni, sbr. a-lið 1. mgr. og a-lið 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

F.h. kærunefndar útlendingamála,

Áslaug Magnúsdóttir, settur varaformaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum